fasteignasölur.is
Klængsbúð 22
Opið hús á morgun kl. 14:00–15:00
1 af 25

Um eignina

Valhöll fasteignasala kynna í einkasölu Klængsbúð 22, Þorlákshöfn. Fallegt, nýlegt (2022), 4ra herbergja fullbúið endaraðhús á einni hæð með innangengum innbyggðum bílskúr.
Húsið er klætt timburhús steypt á sökkul með gólfgeisla. Frábærlega skipulegt fjölskylduhús með aflokaðri suður lóð og verönd.
Húsið er einstaklega vel staðsett þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð/sundlaug og verslanir.

- Eignin er skráð samkvæmt fasteignaskrá alls 121,4 fm.
- Íbúðarhluti 99,2 fm. og bílskúr 22,2 fm.
- Endaraðhús á einni hæð með innangengum bílskúr

- 3 rúmgóð svefnherbergi með fataskápum (herbergi inn af forstofu er merkt geymsla á teikningu)
- Afmörkuð lóð með skólgirðingu og stórum sólpalli sem snýr til suðurs/veðurs
- Hiti er í gólfum
- Tengi fyrir rafmagnsbíl


Eignin skiptist í:  Forstofu, alrými: eldhús/stofa/borðstofa, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, bílskúr og þvottahús.
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísalögð með skápum.
Stofa og eldhús: Rúmgóð stofa og eldhús í opnu rými, parket á gólfi. Gólfsíðir gluggar sem snúa út á suðurverönd með útgengi.
Eldhús er með L-laga innréttingu og eyju. Eyja er með spanhelluborði og góðum skúffum. Innbyggður ísskápur, uppþvottavél, ofn í vinnuhæð fylgir. Uppþvottavélin og blöndunartæki í eldhúsi er 3 mánaða og vaskurinn er ársgamall.
Hjónaherbergi: Rúmgott parketlagt með skáp á heilum vegg.
Svefnherbergi 2: Parketlagt með skáp.
Svefnherbergi 3: Parketlagt með skáp. Er teiknað sem geymsla.
Baðherbergi: Flísalagt á gólfi og veggjum með vaskinnréttingu, upphengdu salerni, walk in sturtu, glerþili og handklæðaofni. Gluggi. Lagðar voru sverari lagnir í sturtuna svo væri meiri kraftur á vatninu.
Bílskúr: Innangengur af forstofu. Stærð 22,2 fm. Rafmagnstafla og hitastýringar fyrir gólfhita. Milliloft er yfir hluta skúrsins.
Þvottahús: Af bílskúr. Mjög gott þvottahús/geymsla með stórum skápum og vinnuborði með vaski.  Utangengt er úr þvottahúsinu af palli og út í lóð
Lóð: Lóðin snýr í suður og vestur og nýtur því sólar þar allan daginn. Garðurinn er með stórum sólpalli á suðurhlið. Lóðin hefur verið afmörkuð til suðurs/vesturs að hluta,  með veglegri skjólgirðingu, útgengi þaðan er á vesturhlið. Útgengi er í lóð úr stofu og þvottahúsi. Að norðanverðu er kominn lítill timburpallur við útihurðina, að öðru leiti er mulningur að framan á bílaplani.

Allar innréttingar og tæki elhúss eru úr Ikea utan vasks sem er frá húsasmiðjunni. Á baðherberginu er vaskinnrétting, klósett og klósettkassi úr BYKO
Flísar inná baði og forstofu úr BYKO. Parket og hurðar eru úr BYKO. Þvottahúsinnrétting og tæki er úr Ikea

Nánari upplýsingar veitir:
Elín Viðarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.695-8905 / elin@valholl.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Valhöll
74.900.000 kr.617 þ./m²
+76,7% á 5 árum
7. febrúar 2022Fyrsta sala
42.400.000 kr.349 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Klængsbúð 22

815 Þorlákshöfn
TegundRað-/parhúsStærð121,4 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
74.900.000 kr.617 þ./m²
Byggingarár2022InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2343369Fasteignamat69.500.000 kr.Brunabótamat69.170.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSíðumúli 27, 108 ReykjavíkSími588-4477

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 25 myndir

Upp ↑