Um eignina
Baldur fasteignasali, beinn sími 450-0000, kynnir: Í einkasölu glæsilega og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð á jarðhæð í nýju og vönduðu Svansvottuðu fjölbýlishúsi við Bygggarða 1 á Seltjarnarnesi. Í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi, þar af hjónasvíta með sérbaðherbergi, tvö baðherbergi, sér þvottahús og bjart alrými með stofu og eldhúsi. Úr stofu er gengið út á sérafnotareit og íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu. Húsið var byggt 2025 og vandað hefur verið til efnisvals og frágangs.
Smelltu hér til að sækja kynningarbækling með öllum helstu upplýsingum
Stærð eignarinnar er 116,40 fermetrar samkvæmt skráningu HMS. Íbúðinni fylgir 11,7 fermetra sérgeymsla í sameign og stæði í bílageymslu.
Aðal sölupunktar:
- Nýtt Svansvottað hús, byggt 2025
- Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi
- Hjónasvíta með sérbaðherbergi og stórum fataskáp
- Sérafnotareitur út frá stofu
- Sérsmíðaðar innréttingar frá Selós og Dekton steinn á borðplötum
- Vönduð heimilistæki, flest frá Miele
- Gólfsíðir gluggar og góð lofthæð
- Gólfhiti og jafnvægisstillt loftræsikerfi með varmaendurvinnslu
- Sér þvottahús með innréttingu
- 11,7 fm sérgeymsla í sameign
- Stæði í bílageymslu, búið að leggja fyrir hleðslustöð í bílakjallara
- Stutt í Gróttu, strandlengjuna og alla þjónustu á Seltjarnarnesi
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísar á gólfi og fataskápur.
Eldhús: Opið inn í stofu og myndar með henni bjart og rúmgott alrými. Sérsmíðuð innrétting frá Selós, spónlögð með eik í bland við dökkar sprautulakkaðar einingar, og rúmgóð eyja. Dekton steinn á borðplötum og milli efri og neðri skápa. Spanhelluborð með innbyggðum gufugleypi í eyju, innbyggður kæli- og frystiskápur, innbyggð uppþvottavél og bakaraofnar í vinnuhæð. Heimilistæki eru flest frá Miele. Harðparket á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð með gólfsíðum gluggum, harðparketi á gólfi og útgengi á sérafnotareit.
Hjónaherbergi: Rúmgóð hjónasvíta með stórum fataskáp, harðparketi á gólfi og sérsniðnum myrkvunargardínum. Inn af herberginu er sérbaðherbergi.
Svefnherbergi II: Harðparket á gólfi og fataskápur.
Svefnherbergi III: Harðparket á gólfi.
Baðherbergi við hjónaherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Sérsmíðuð innrétting með eikarspónlögðum vaskaskáp og steini á borði, walk-in sturta, vegghengt salerni og handklæðaofn.
Baðherbergi: Flísalagt með sérsmíðaðri innréttingu og eikarspónlögðum vaskaskáp, walk-in sturta og handklæðaofn.
Þvottahús: Inn af baðherbergi, flísar á gólfi og sérsmíðuð innrétting. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, vaskur og aukaskápur.
Geymsla: 11,7 fermetra sérgeymsla í sameign.
Bílastæði: Stæði í bílageymslu. Búið er að leggja fyrir hleðslustöð í bílakjallara en eftir er að leggja að stæðinu.
Sameign: Sameiginleg hjólageymsla og leiksvæði á lóð.
Húsið: Staðsteypt og einangrað hús, byggt 2025 og Svansvottað. Klætt að utan með svartri Dekton steinklæðningu, koparlitaðri álklæðningu og bambusklæðningu.
Gluggar: Gólfsíðir og hærri til lofts en almennt gerist, sem hámarkar birtu inn í íbúðina.
Hiti og loftræsing: Gólfhiti í íbúðinni og jafnvægisstillt loftræsikerfi með varmaendurvinnslu sem tryggir góð loftgæði.
Hljóðvist: Hljóðísogsplötur í hluta lofts bæta hljóðvist.
Staðsetning: Bygggarðar eru nýtt íbúðahverfi á Seltjarnarnesi, stutt frá sjónum. Fallegar göngu- og hjólaleiðir liggja meðfram strandlengjunni og út í Gróttu, og stutt er í skóla, leikskóla, Sundlaug Seltjarnarness, Eiðistorg og alla helstu þjónustu. Örstutt er í miðbæ Reykjavíkur.
Glæsileg og vel skipulögð fjölskyldueign í nýju og vönduðu húsi á eftirsóttum stað á Seltjarnarnesi.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski, löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000
Skoða meðmæli - Verðmat fasteigna - Greiðslumat.is - Að selja hjá Baldri
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður
Verðsaga
2 þinglýstir kaupsamningarHeimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Bygggarðar 1
Staðsetning
Allar 28 myndir
Upp ↑


























