fasteignasölur.is
Sæviðarsund 13
Opið hús 16. nóv. kl. 17:00–17:30
1 af 34

Um eignina

Sæviðarsund 13 - Reykjavík
- Bílskúr og aukaíbúð -

OPIÐ HÚS MÁNUDAGINN 16.NÓV FRÁ KL 17:00-17:30
  
  • Eignin mikið endurnýjuð
  • Nýlegt eldhús og tæki 
  • Nýleg gólfefni og innihurðir
  • Þrjú herbergi
  • Bílskúr
  • Aukaíbúð með tveimur svefnherbergjum
  • Tvennar svalir til suðurs og austurs

STOFAN FASTEIGNASALA kynnir bjarta og fallega 4 herbergja íbúð í litlu fjölbýli við Sæviðarsund 13, Reykjavík.
Íbúðin hefur verið endurnýjuð að miklu leyti og fylgir henni bílskúr og aukaíbúð sem er í útleigu.
Eignin er skráð samtals 169 fm, þarf af er bílskúr 28,9 fm og aukaibúð sem er 51,6 fm.


Komið er inn í forstofu / hol með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Eldhús er opið og samliggjandi með stofu, falleg innrétting frá Kvik, bakarofn í vinnuhæð, spanhelluborð, vínkælir, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur, microsement á veggjum, harðparket á gólfi.
Stofa / borðstofa er rúmgóð og björt með stórum gluggum, harðparketi á gólfi.
Herbergi I er með góðum fataskápum og harðparketi á gólfi, útgengt úr herbergi á svalir.
Herbergi II er með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Herbergi III þar sem útgengt er út á svalir. Herbergið er nýtt sem vinnuherbergi í dag en var áður hluti af stofu og hægt að breyta tilbaka með auðveldum hætti.
Baðherbergi með góðri innréttingu, salerni og baðkar með sturtu. Flísar eru á gólfi og í kringum baðkar.
Sérgeymsla staðsett í sameign á jarðhæð (4 fm).
Sameiginlegt þvottahús einnig í sameign á jarðhæð (hver með sína vél).
Bílskúr sem er rúmgóður - heitt og kalt vatn. (Bílskúrinn var áður nýttur sem íbúð og var í útleigu en búið er hreinsa út úr rýminu þar sem að það var orðið lúið).
Aukaíbúð er staðsett á jarðhæð sem skiptist í eldhús, stofu, baðherbergi og tvö rúmgóð herbergi. Er í útleigu í dag. 

Skv.seljanda:
Eldhús og tæki endurnýjað 2023 - innrétting frá Kvik, nýjir tenglar og sér rafmagnstafla fyrir eldhúsið.
Nýr forstofuskápur frá Axis 2024
Nýtt harðparket og innihurðir frá Birgisson 2024
Miðstöðvarofnar yfirfarnir og skipt um hitastilla 2025
Nýr þrýstijafnari í hitagrind 2025
Húsið múrviðgert og málað að utan árið 2025
Þak málað 2025

Þetta er falleg og björt íbúð sem hefur verið endurnýjuð að miklu leyti - frábær staðsetning þar sem að skólar, leikskólar, verslanir og helsta þjónusta er í göngufæri.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðný Ósk í síma 866-7070, gudny@stofanfasteignir.is og Atli Þór í síma 699-5080, atli@stofanfasteignir.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv.gjaldskrá.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · STOFAN FASTEIGNASALA
109.900.000 kr.658 þ./m²
+171,4% á 12 árum
29. október 2014Þinglýstur kaupsamningur
40.500.000 kr.243 þ./m²
+14,1% á 7 árum
24. ágúst 2007Fyrsta sala
35.500.000 kr.213 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Sæviðarsund 13

104 Reykjavík · Vogar
TegundFjölbýlishúsStærð167 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
109.900.000 kr.658 þ./m²
Byggingarár1965InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2018256Fasteignamat101.650.000 kr.Brunabótamat89.100.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangFornubúðir 10, 220 HafnarfirðiSími866 7070 / 571 7070

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 34 myndir

Upp ↑