fasteignasölur.is
Koltröð 3
1 af 18

Um eignina

Vel staðsett einbýlishús á tveimur hæðum með fimm svefnherbergjum, baðherbergi á báðum hæðum og tvöföldum bílskúr. Örstutt í skóla og íþróttamiðstöð.
Á efri hæð eru stofa og eldhús í opnu og sérlega rúmgóðu rými með parket á gólfi og útgengt á timburverönd við suðurhlið hússins. Baðherbergi hefur allt verið endurnýjað og flísalagt í hólf og gólf. Þar er fín innrétting, handklæðaofn og rúmgóð sturta. Inn af herbergjagangi eru þrjú svefnherbergi, öll með parket á gólfi og fataskápar eru í öllum herbergjum.
Á neðri hæð eru tvö svefnherbergi til viðbótar, einnig með parket á gólfi og með fataskápum. Á neðri hæð er annað baðherbergi sem einnig hefur verið endurnýjað með flísum á gólfi og flísapanil á veggjum. Þar er sturta, handklæðaofn og fín innrétting. Nokkuð rúmgott þvottahús með innréttingu er á neðri hæð og þaðan er útgengt. Innangengt er af neðri hæð í tvöfaldan bílskúr. Í bílskúr hefur sjötta svefnherbergið verið útbúið en einfalt er að fjarlægja það.
 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · INNI fasteignasala
84.800.000 kr.400 þ./m²
+239,2% á 15 árum
2. febrúar 2012Fyrsta sala
25.000.000 kr.118 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Koltröð 3

700 Egilsstaðir
TegundEinbýlishúsStærð212,2 m²Herbergi6Svefnherb.5Baðherb.2
84.800.000 kr.400 þ./m²
Byggingarár1989InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2175770Fasteignamat78.450.000 kr.Brunabótamat100.300.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangFagradalsbraut 11, 700, EgilsstaðirSími580-7905

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 18 myndir

Upp ↑