fasteignasölur.is
Orkureiturinn D2 504
Opið hús á morgun kl. 12:00–13:00
1 af 13

Um eignina

Jason Kristinn s. 7751515 á Betri Stofunni og Safír byggingar ehf kynna með stolti Orkureitinn. Glæsilegar nýjar íbúðir í öðrum áfanga (D-húsi) á Orkureitnum við Suðurlandsbraut 38-44 og Grensásveg 2-6. Glæsilegt lyftuhús, sannkallaður sælureitur við Laugardalinn. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar með vönduðum Nobilia Innréttingum frá GKS, flísalögðum baðherbergjum en án megingólfefna. Rut Kára stýrir innanhússhönnun og er sérstök áhersla lögð á gott flæði dagsbirtu. Svansvottaðar íbúðir.

Heimasíða Orkureitsins

Orkureitur - Grensásveg, íbúð 504 er 3-4ja herbergja 127,7 fm  með sérmerktu stæði B061. 

Flæði íbúðar:
Komið inní anddyri með góðum fataskápum.
Baðherbergi með sturtu.  
Hjónasvíta með góðum fataskápum og sér baðherbergi.
Herbergi II Er með fataskáp
Herbergi III er sjónvarpsrými á teikningu, en lítið mál að breyta í svefnherbergi.
Úr stofu er gengið út á svalir.
Eldhúsið er með stein á borðplötum. Glæsileg innrétting frá GKS með eyju. Safír Harmónía.
Alrými tengir saman eldhús, borðstofu og stofu og er með gólfsíðum gluggum.
Sérþvottahús íbúðar er rúmgott með góðri innréttingu.
Gólfsíðir gluggar og gólfhit ásamt loftskiptakerfi gefa aukin gæði. 
Sérgeymsla er 14,6 fm.
Innréttingaþema er Harmónía. Steinn á borðum. Vönduð eldhústæki frá Siemens, Elica og Bora. 

Nánar um Orkureitinn: 
Bjartar og vel hannaðar íbúðir. Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði.

Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús. Fyrsta áfanga (A-húsi) er lokið en áformað er að allri uppbyggingu á svæðinu verði lokið í lok árs 2027. 

Nánari upplýsingar veita sérfræðingar Betri Stofunnar: 
Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1515 - tölvupóstur: jason@betristofan.is
Guðbjörg Guðmundsdóttir , í síma 899-5533, tölvupóstur gudbjorg@betristofan.is.
Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021 - tölvupóstur: hreidar@betristofan.is
Telma Rut Frímannsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 772-3555 - tölvupóstur: telma@betristofan.is

 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Orkureiturinn D2 504

108 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð127,7 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.2
139.900.000 kr.1.096 þ./m²
Byggingarár2026InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2536361Fasteignamat93.750.000 kr.Brunabótamat75.950.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 13 myndir

Upp ↑