fasteignasölur.is
Melgata 5
1 af 40

Um eignina

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Melgata 5 - Mikið endurnýjað 6 herbergja einbýlishús með aukaíbúð með sér inngangi og rúmgóðum bílskúr á Grenivík - stærð 261,4 m²
Húsið er skráð steypt og með byggingarár 1977


* Eignin var mikið endurnýjuð árið 2008. Þá var lagður gólfhiti í gólf efri hæðar, skipt um gólfefni og settar upp nýjar innréttingar, fataskápar og innihurðir, auk fleiri endurbóta.
* Útidyrahurðir hafa verðið endurnýjaðar.
* Hluti af gleri og opnanlegum fögum hefur verið endurnýjað.
* Búið er að jarðvegsskipta með norðurhliðinni og stækka bílaplanið.


Forstofu/aðalinngangur er á efri hæð hússins og er gengið upp timburstiga frá bílaplani. Í forstofu eru flísar á gólfi og stór skápur og skúffueining. Hiti er í gólfi.
Annar inngangur er inn á neðri hæðina og þar eru ljósar flísar á gólfum. Við endann á forstofunni er flísalagt hol og þaðan liggur parketlagður timburstigi upp á efri hæðinni en þar er einnig hurð út á um 100 m² timburverönd þar sem er heitur pottur. 
Eldhús, vönduð sérsmíðuð hvíttuð spónlögð eikarinnrétting með ljósri bekkplötu. Mjög gott skápa- og bekkjarpláss. Stæði er í innréttingu fyrir uppþvottavél og amerískan ísskáp. Parket er á gólfi. 
Borðstofa er með flísum á gólfi og hurð út á timbur verönd, um 30 m² að stærð. 
Stofa er með parketi á gólfi og stórum gluggum með útsýni út fjörðinn. 
Gangur er með parketi á gólfi og einföldum innbyggðum skáp. Af ganginum er gengið inn í öll helstu rýmin á hæðinni. 
Svefnherbergin eru fjögur, þrjú á efri hæðinni og öll með parketi á gólfi og hvíttuðum spónlögðum eikarfataskápum og eitt á neðri hæðinni með ljósu harðparketi á gólfi. Möguleiki væri að nýta geymslu á efri hæðinni sem fimmta svefnherbergið. 
Geymsla á efri hæðinni er með parketi á gólfi og stórum glugga með opnanlegu fagi og getur þar af leiðandi nýst sem svefnherbergi. 
Baðherbergin eru tvö, eitt á hvorri hæð. Aðal baðherbergið er á efri hæðinni og þar eru flísar á gólfi og veggjum, sérsmíðuðu hvíttuð spónlögð eikarinnrétting, upphengt wc, handklæðaofn, baðkar með sturtutækjum og opnanlegur gluggi. Baðherbergi á neðri hæðinni er með lökkuðu gólfi, handlaug, wc, sturtuklefa og opnanlegum glugga. Þar er einnig aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. 
Bílskúr er um 40 m² að stærð. Þar er lakkað gólf og rafdrifin innkeyrsluhurð. Hleri er í gólfinu niður í útgrafið rými. 

Sér 2ja herbergja íbúð er á neðri hæðinni og skiptist í hún í forstofu, eldhús og stofu í alrými, svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu. 
Ljóst harðparket er á öllum gólfum fyrir utan baðherbergi, þar eru flísar. 
Eldhús og stofa eru í alrými þar sem harðparket er á gólfum og gluggar til austurs. Hvít eldhúsinnrétting með ljósri bekkplötu. 
Baðherbergi er með flísum á gólfi, hvítri innréttingu, wc, sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 
Geymsla er með ljósu harðparketi á gólfi. 

Annað
- Gólfhiti er á efri hæðinni og rafmagnskynding á neðri hæðinni. 
- Varmaskiptir.
- Stór timburverönd er með suður og vesturhliðinni.
- Búið er að setja upp rafhleðslustöð.
- Frábært útsýni yfir fjöll og sjó.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Hvammur Fasteignasala
95.000.000 kr.363 þ./m²
+167,6% á 8 árum
29. maí 2018Fyrsta sala
35.500.000 kr.136 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Melgata 5

610 Grenivík
TegundEinbýlishúsStærð261,4 m²Herbergi7Svefnherb.5Baðherb.3
95.000.000 kr.363 þ./m²
Byggingarár1977InngangurTveir inngangarBílskúrJáFasteignanúmerF2160960Fasteignamat64.900.000 kr.Brunabótamat117.000.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 40 myndir

Upp ↑