fasteignasölur.is
Skarðshlíð 30 B
Opið hús 16. nóv. kl. 16:30–17:00
1 af 38

Um eignina

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Skarðshlíð 30 B
 
Um er að ræða vel skipulagða og mjög rúmgóða 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýli í Glerárhverfi. Skráð stærð skv. HMS er 96,9 fm. en auk þess er mjög stór geymsla í sameign sem er ekki hluti af heildarfermetrum íbúðar. 
 
Eignin skiptist í stofu, eldhús, þvottahús, geymslu innan íbúðar, tvö svefnherbergi og baðherbergi.
 
Forstofa er með parketi á gólfi og fataskáp.
Stofa er rúmgóð og björt með parket á gólfi og stórum glugga til suðurs. 
Eldhús er með parketi á gólfi, hvít innrétting sem liggur í U. Inn af eldhúsi er gengið inn í þvottahús og þar er hvít innrétting og pláss fyrir þvottavél og þurrkara. Í þvottahúsi er málað gólf. Inn af þvottahúsi er rúmgóð geymsla sem er með dúk á gólfi.
Svefnherbergin eru tvö og góðir fataskápar í öðru þeirra. Úr hinu herberginu er gengið út á suðursvalir með góðu útsýni til austurs.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum. Þar er hvít innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og sturtuklefi með glervængjum.
 
Í sameign er stór og afar rúmgóð sér geymsla sem fylgir íbúðinni, líklega um 20 fm.. Auk þess er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. 
 
Annað:
-Eignin getur verið laus fljótlega
-Blokkin var máluð að utan í sumar, 2026
-Nýjar útidyrahurðir á blokkinni
-Stigagangur tekinn í gegn nýlega, nýtt teppi og veggir málaðir, afar snyrtilegt sameignarsvæði
-Góð staðsetning þar sem stutt er í matvöruverslun, leik- og grunnskóla ásamt íþróttasvæði Þórs

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
halla@byggd.is
olafur@byggd.is
greta@byggd.is
bjorn@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Skarðshlíð 30 B

603 Akureyri (utan Glerár)
TegundFjölbýlishúsStærð96,9 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
49.900.000 kr.515 þ./m²
Byggingarár1969InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2150378Fasteignamat47.200.000 kr.Brunabótamat58.150.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkipagötu 16, 600 AkureyriSími464-9955

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 38 myndir

Upp ↑