fasteignasölur.is
Straumhella 26D
1 af 11

Um eignina

Erling Proppé & REMAX kynna Glæsileg bil með stórri hurð og mikilli lofthæð við Straumhellu 26, 221 HFJ. Tilbúin til afhendingar! 

Um er að ræða einnar hæða upphitað iðnaðar- og geymslu húsnæði sem að skipt er upp í 10 einingar með sameiginlegu inntaksrými. Norðanmegin í húsinu eru fimm rými og sunnanmegin eru fimm rými. Lóðin verður girt af allan hringin með tveimur aksturshliðum.

Bil 104: 157 m2 að grunnfleti, að auki verður uppsett 60m2 skráð milliloft með aðgengi út á svalir, samtals skráð stærð verður því 217,3 m2. 

AFHENDING: BILIN ERU KLÁR TIL AFHENDINGAR. 


Breidd x Dýpt: ca. 10 m að innanmáli x 15,5m að dýpt.
Lofthæð: ca. 9m í mæni og 7m í útvegg. 
Iðnaðarhurð: 4,2m hæð x 4m breidd

Burðarvirki / Frágangur utanhúss
Burðavirki byggingar er límtré. Gólfplata og sökklar eru úr járnbentri steinsteypu á burðahæfu undirlagi.
Grundun, byggingin stendur á fylltum og þjöppuðum púða. Sökklar eru einangraðir að utan með 100mm polystyren einangrun. Sökklar eru einangraðir að innan og með 100
mm polystyren einangrun og sömuleiðis undir gólfplötu. Húsið er klætt með yleiningum, steinullareiningar 105 mm á þykkt.
Þak á húsnæði er trapizu steinullareiningar þak 140/200mm 
Umgangshurðir verða úr PVC. Iðnaðarhurðar eru frauðfylltar samlokuhurðar sem opnast á brautum.
Stálklæddar einingar í útveggjum og þaki verða ekki klædd af.
Litur utanhúseininga, hurða og þaks er dökkur.
Uppsett myndavélakerfi komið í umsjá húsfélags.

Lagnaleiðir, upphitun, loftræsting
Inntök vatns og rafmagns verður í inntaksými. Neysluvatnskerfi er hefðbundið. Varmaskiptir skal vera á neyðsluvatnskerfi sem tekur hitann niður í 30-65 gráður á celsius. Gólfniðurföll eru staðsett í votrýmum sem og í geymsluhúsnæði sjá merkingar á grunnmynd.
Niðurfallsrör og rennur verða utanáliggjandi.

Raflagnir eru utanáliggjandi eða lagðar í steypta plötu. Rafmagnsinntak er sameiginlegt fyrir allt húsið og er staðsett í inntaksrými ásamt töfluskápum fyrir hverja notendur. Húsið verður upphitað með rafmagnsblásurum með hitaveitu sem varmagjafa.

Innveggir og innihurðir
Innveggir á milli geymslurýma eru steinullar yleiningar eru 80 mm á þykkt.

Lóð
Lóðin verður að hluta til í sameign allra, bílastæði verða á lóð meðfram lóðamörkum. Malbikað eftir veðurskilyrðum.

Virðisaukaskattskvöð verður á eigninni sem kaupandi tekur við.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Erling Proppé lgf. // 690-1300 // erling@remax.is


Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.500 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til  fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.
 

Straumhella 26D

221 Hafnarfjörður
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð217,1 m²
69.500.000 kr.320 þ./m²
FasteignanúmerF2541758Fasteignamat5.440.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 11 myndir

Upp ↑