fasteignasölur.is
Safamýri 37
NýttOpið hús á morgun kl. 13:00–13:30
1 af 42

Um eignina

Miklaborg kynnir: Björt og rúmgóð efri sérhæð við Safamýri 37, alls 174,3 fm með bílskúr. Eignin er í tvíbýlishúsi á gróinni lóð í friðsælum botnlanga. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð og býður upp á fjögur svefnherbergi, 3 baðherbergi, eldhús, stofu og borðstofu, stórar og sólríkar svalir og snyrtilegan bílskúr. Eitt svefnherbergið er í kjallara, með sérinngangi og baðherbergisaðstöðu — hentugt til útleigu eða fyrir gesti.

Frábær fjölskyldueign á eftirsóttum stað, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, meðal annars grunnskóla, leikskóla og fjölbreytta íþróttastarfsemi.

Nánari upplýsingar veitir Íris Arna, löggiltur fasteignasali í síma 7700500 eða iris@miklaborg.is

Forstofa: Gengið er inn í snyrtilega teppalagða forstofu með stiga upp á efri hæð. Á stigapallinum er gengið inn í svefnherbergi og snyrtingu. Í svefnherberginu er góður fataskápur.

Stofa og borðstofa: Rúmgóð og björt stofa með eikarparketi og útgengi á stórar, sólríkar suðursvalir.

Eldhús: Nýlega endurnýjað eldhús með fallegri hvítri innréttingu, eikarborðplötu og nýlegum tækjum. Þar eru tveir ofnar, búrskápar og helluborð með gufugleypi. Flísar eru á gólfi.

Baðherbergi: Nýlega endurnýjað og flísalagt í hólf og gólf. Þar er walk-in-sturta, hvít baðinnrétting, stór spegill með lýsingu, upphengt salerni og opnanlegur gluggi. Tengi er fyrir þvottavél.

Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum, eikarparketi og útgengi á austursvalir.

Svefnherbergi: Stórt og gott svefnherbergi með fataskáp og eikarparketi. Herbergið var áður tvö svefnherbergi en hefur verið sameinað í eitt rúmgott rými.

Geymsla: Sérgeymsla í kjallara, 7,8 m².

Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús er í kjallara.

Bílskúr: Snyrtilegur og rúmgóður bílskúr með glugga, 25,8 m².

Svefnherbergi í kjallara: Stórt svefnherbergi með sérinngangi og aðgangi að sameiginlegu baðherbergi með sturtuklefa. Herbergið hentar vel til útleigu og er með harðparketi á gólfi.
Nánari upplýsingar veitir Íris Arna, löggiltur fasteignasali í síma 7700500 eða iris@miklaborg.is

Safamýri 37

108 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð174,3 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.3
136.000.000 kr.780 þ./m²
Byggingarár1964InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2014185Fasteignamat111.200.000 kr.Brunabótamat92.960.000 kr.
Skráð hjá
Íris Arna GeirsdóttirLöggiltur fasteignasali, M.A markaðsfræðingur770-0500 · iris@miklaborg.is
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 42 myndir

Upp ↑