fasteignasölur.is
Laugalækur 15
Opið hús á morgun kl. 14:00–14:45
1 af 31

Um eignina

Katrín Eliza Bernhöft löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX kynnir í einkasölu: Laugalækur 15, 105 Reykjavík

Laugalækur 15 er hluti af einstaklega fallegri og litríkri raðhúsalengju á besta stað í Laugardalnum. Eignin er á þremur hæðum með góðu og björtu alrými, eldhúsi, fjórum svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, þvottahúsi og geymslu innan eignar og virkilega skemmtilegum útipalli. Raðhúsið er staðsett í rótgrónu hverfi og stutt í alla helstu þjónustu. Raðhúsalengjan hlaut fegrunarviðurkenningu Reykjavíkurborgar árið 2025.

Góð staðsetning í Laugardalnum. Stutt í alls konar útivist, íþróttamannvirki, sundlaug, grunnskóla, leikskóla, verslanir og ótal fallegar gönguleiðir í Laugardalnum.  Kaffihús, bakarí og ísbúð eru í Laugalæk. Íþróttasvæði Þróttar, fimleikar hjá Ármanni og Frjálsar hjá ÍR eru í göngufæri. Laugarnesskóli og Laugalækjarskóli eru í göngufæri.

Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 174,4 fm. Eignin hefur fastanúmerið 201-6594 og selst ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðaréttindum.

SMELLTU HÉR og skoðaðu þessa eign í 3-D (Ekki er þörf á sérstöku forriti)

Nánari lýsing:
Gengið er upp nokkrar útitröppur og komið inn í flísalagt andyri.

Á miðhæð:
Stofan er mjög björt og rúmgóð og þaðan er útgengt á stóran viðarsólpall sem er í garðinum.
Eldhúsið hefur verið endurnýjað að hluta með fallegum innréttingum. Eldhúsið er með bæði góðu skápa- og vinnuplássi. Góð aðstaða fyrir rúmgóðan borðkrók.

Á milli hæða eru svalir sem snúa út að bílaplani.

Á efri hæð:
Hjónaherbergi með parketi á gólfi.
Herbergi 2 með parketi á gólfi.
Herbergi 3 með parketi á gólfi.
Baðherbergið er flísalagt á veggjum og gólfi. Sturta, salerni, vaskur og hvítar hillur. 

Á neðri hæð:
Herbergi 4
með parketi á gólfi.
Baðherbergið er flísalagt með salerni og vaski.
Rúmgott þvottahús og sér geymsla. 

Hjólageymsla er í sameign.

Íbúðin er virkilega björt, falleg og á frábærum stað. Algjörlega þess virði að skoða.

Samkvæmt eigendum eignarinnar hefur verið farið í ýmsar framkvæmdir á eigninni á liðunum áðum. Nánari upplýsingar hjá fasteignasala.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Katrín Eliza Bernhöft löggiltur fasteignasali, s.699 6617, katrin@remax.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. REMAX bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af löggiltum fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
Stimpilgjald af kaupsamningi - Einstaklingar 0,8% af heildarfasteignamati - Lögaðilar 1,6% - fyrstu kaup einstaklinga 0,4%
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk     
Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunnar.
 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · RE/MAX
154.900.000 kr.888 þ./m²
+349,0% á 20 árum
2. febrúar 2007Fyrsta sala
34.500.000 kr.198 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Laugalækur 15

105 Reykjavík · Austurbær
TegundRað-/parhúsStærð174,4 m²Herbergi6Svefnherb.4Baðherb.2
154.900.000 kr.888 þ./m²
Byggingarár1960InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2016594Fasteignamat119.750.000 kr.Brunabótamat88.500.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 31 myndir

Upp ↑