fasteignasölur.is
Grensásvegur 6 207
Opið hús á morgun kl. 12:00–12:55
1 af 36

Um eignina

Jason Kristinn s. 7751515 á Betri Stofunni og Safír byggingar ehf kynna með stolti Orkureitinn. Glæsileg ný íbúð við Grensásveg 6. Glæsilegt lyftuhús, sannkallaður sælureitur við Laugardalinn. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar með vönduðum Nobilia Innréttingum frá GKS, flísalögðum baðherbergjum en án megingólfefna. Rut Kára stýrir innanhússhönnun og er sérstök áhersla lögð á gott flæði dagsbirtu. Svansvottaðar íbúðir.

Heimasíða Orkureitsins

Orkureitur - Grensásveg, íbúð 207 er 2ja herbergja 75,7 fm að meðtalinni geymslu í kjallara. Íbúðin er við Grensásveg 6 og snýr til suðurs og suðvesturs.

Flæði íbúðar:
Komið inní anddyri með fataskápum. Gólfhiti er í íbúðinni.
Baðherbergi með sturtu og þvottaaðstöðu innaf.
Svefnherbergi með góðum fataskápum.
Alrými tengir saman eldhús, borðstofu og stofu og er með gólfsíðum gluggum.
Úr alrými er gengið út á svalir til suðvesturs sem eru 6,5 fermetrar.
Eldhúsið er með glæsilegri innréttingu frá GKS með eyju.
Gólfsíðir gluggar og gólfhit ásamt loftskiptakerfi gefa aukin gæði. 
Sérgeymsla er 9,7 fm. er í kjallara og aðgengi í lokaðan bílakjallara þar sem möguleiki er að leigja bílastæði. 
Innréttingaþema er Safír Klassík. Vönduð eldhústæki frá Siemens, Elica og Bora.
Aðgengi að sameiginlegri líkamsrækt.
Nánar um Orkureitinn: 
Bjartar og vel hannaðar íbúðir. Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði.

Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús. 

Nánari upplýsingar veita sérfræðingar Betri Stofunnar: 
Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1515 - tölvupóstur: jason@betristofan.is

 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Grensásvegur 6 207

108 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð75,7 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.2
77.900.000 kr.1.029 þ./m²
Byggingarár2026InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2536337Fasteignamat64.000.000 kr.Brunabótamat44.700.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 36 myndir

Upp ↑