Um eignina
Eignin skiptist í 3 svefnherbergi, rúmgóða stofa með útgengi útá sérafnotareit með hellulagðri stétt. Íbúðin er endaíbúð með gluggum í þrjár áttir sem gerir hana mjög bjarta. Opið úr eldhúsi inní borðstofu og stofu. Þvottahús er innan íbúðar. Endurnýjað baðherbergi. Sérgeymsla í sameign, er ekki inní skráðum fermetrum eignar en er 5,22 fm að innramáli skv. teikningu. ATH: Birtir fermetrar eru fleiri.
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Parket á gólfi, nýleg innrétting með góðu skápaplássi og viðarborðplötu. Opnanlegur gluggi. Búið að opna inní stofu.
Stofa og borðstofa: Parket á gólfi, stórir gluggar í suður. Útgengi á stóran, gróinn sérafnotareit með hellulagðri stétt.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, stór fataskápur.
Svefnherbergi II: Parket á gólfi, fataskápur.
Svefnherbergi III: Parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi, nýleg innrétting með handlaug, línskápur, sturta.
Þvottahús: Inn af forstofu, flísar á gólfi, skolvaskur, innrétting.
Sérgeymsla birtir fermetrar ca. 6-7, í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. (ekki skráð)
Sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara. (skráð í birtum fermetrum, 27 fm). - Rafhleðsla er við stæðið, einnig eru stöðvar fyrir utan húsið
Þvottaðastaða fyrir bíla er í bílakjallara.
Rafhleðslustöðvar eru við húsið.
Framkvæmdir undanfarið og væntanlegar skv. yfirlýsingu frá húsfélagi:
2027 Endurnýjun innkeyrsluhurðar í bílakjallara seinni hluta árs 2027, Lagfæra lóð og leiksvæði.
2025 Þakkantur lagaður, þakrennum skipt út eftir þörfum.
2023 Lagt fyrir rafhleðslustöðvum í bílakjallara. Fjórar hleðslustöðvar settar upp við bílastæði fyrir utan húsið.
2022 Lýsing/ljós endurnýjuð í bílakjallara. 2021 Skipt var um alla ofnaloka/hitastýringu í sameign. 2018 Nýjar lyftur voru settar í báða stigaganga.
Ákveðið síðar: Undirbúa endurbætur og málun á þaki. Nánari ákvörðun verður tekin á aðalfundi 2027.
Undirbúa endurbætur og viðgerð á þaki bílakjallara. Nánari ákvörðun verður tekin á aðalfundi 2027.
Samantekt: Falleg 4fa herbergja 106,1 fm íbúð með sér garði, eign á frábærum stað þar sem Kringlan og Borgarleikhúsið eru í göngufæri. Skólar, leikskólar og öll helsta þjónusta í nágrenni.
Nánari upplýsingar gefur Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Verðsaga
2 þinglýstir kaupsamningarHeimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Neðstaleiti 2
▲ Hækkað 11. nóvember 2026 um 1,0 m.kr. · var 88.900.000 kr.
Staðsetning
Allar 32 myndir
Upp ↑






























