Opið hús á morgun kl. 13:00–13:30
1 af 15Um eignina
Eignamiðlun kynnir:
Rúmgóð 4ra herbergja 104,5 fm íbúð á fyrstu hæð við Rökkvatjörn 1, Úlfarsárdal. Þrjú svefnherbergi, baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, opið eldhús inn í borðstofu og stofu með eyju í eldhúsi. Góðar svalir út frá stofu. Bílastæði í bílakjallara merkt B21.Nánari upplýsingar veitir: Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is
Nánari lýsing:
Komið er inn forstofu með fataskápum.
Baðherbergi: Baðherbergi með sturtuklefa. Handlaug, handklæðaofn og upphengt salerni. Flísar á gólfum og veggjum frá Parka.
Eldhús: Eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi frá Axis. Ofn í vinnuhæð, góð vinnuaðstaða. Eyja með eldavél og góðu skúffuplássi.
Þrjú svefnherbergi með góðu skápaplássi. Parket á allri íbúð nema baðherbergi.
Stofa/ borðstofa: Rúmgóð setustofa og borðstofa opið inn í eldhús. Gengið er út á svalir út frá stofu, stór rennihurð.
Þvottahús: Þvottahús inn á salerni með fallegri innréttingu.
Bílakjallari og geymsla: Bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir íbúðinni ásamt geymslu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati. (0,4% ef um er að ræða fyrstu eign)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr kauptilboði.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - gunnarbergmann@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Rökkvatjörn1 - íbúð 104
113 Reykjavík · Grafarholt
TegundFjölbýlishúsStærð104,5 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
77.900.000 kr.745 þ./m²
Byggingarár2023InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2525162Fasteignamat78.500.000 kr.Brunabótamat75.000.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 15 myndir
Upp ↑













