fasteignasölur.is
Vatnagarðar 18
1 af 15

Um eignina

Vatnagarðar 18 er afar vel staðsett atvinnuhúsnæði á miðsvæði í Reykjavík. Gott útipláss er fyrir framan húsið ásamt nægu bílastæðaframboði. Eignin er skráð á tvö fastanúmer, annars vegar 647,5 fm og hins vegar 133 fm, samtals 780,5 fm samkvæmt fasteignaskrá.

Eignin býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika og getur hentað undir margvíslega starfsemi. Aðkoma að húsinu er góð, gluggar eru víða og skapa bjart vinnuumhverfi. Húsið er með fjórar innkeyrsluhurðir og þrjár gönguhurðir, sem auðveldar flæði og aðgengi. Að innan er rýmið að mestu leyti opið í dag, sem gefur nýjum eigendum eða leigjendum tækifæri til að skipuleggja og aðlaga húsnæðið að eigin þörfum. Í húsinu er jafnframt salernisaðstaða og skrifstofurými.

Allir fermetrar eignarinnar eru á jarðhæð, sem eykur aðgengi og fjölbreytta nýtingarmöguleika.

Einstakt tækifæri til að eignast eða leigja vel staðsett atvinnuhúsnæði á eftirsóttum stað í Reykjavík með góðri aðkomu, rúmgóðu plani og fjölbreyttum nýtingarmöguleikum.


Nánari upplýsingar veitir: 
Stefán Rafn Sigurmannsson s.655-7000 eða stefan@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is 

Vatnagarðar 18

104 Reykjavík · Vogar
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð780,5 m²
Tilboð
Byggingarár1983FasteignanúmerF2015942Fasteignamat171.500.000 kr.Brunabótamat233.550.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 17, 220 HafnarfjörðurSími520-2600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 15 myndir

Upp ↑