fasteignasölur.is
Breiðavík 24
1 af 23

Um eignina

Fasteignasalan Hraunhamar og Einar Örn Ágústsson, löggiltur fasteignasali, kynna til sölu bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á 3. hæð við Breiðavík 24 í Grafavogi. Íbúðin er skráð 86 fm samkvæmt FMR, þar af er 5,2 fm geymsla í kjallara. 

Eignin skiptist í: 
forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi, þvottahús og geymslu í kjallara.

Allar nánari upplýsingar veitir Einar Örn Ágústsson, löggiltur fasteignasali, í síma 888-7979 eða á einar@hraunhamar.is.

Nánari lýsing: 
Forstofan er flísalögð með fatahengi og skáp.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með baðkari, sturtu, skápum og innréttingu með handlaug.
Hjónaherbergið er parketlagt og með skápum.
Eldhúsið er parketlagt og með góðu skápaplássi. Viðarinnrétting með ísskáp, stæði fyrir uppþvottavél, ofni, helluborði og viftu fyrir ofan.
Barnaherbergið er parketlagt og með skáp.
Samliggjandi stofa og borðstofa eru parketlagðar, útgengt á rúmgóðar suðursvalir.
Þvottahúsið er dúklagt með skápum, vinnuborði og vaski.
Sérgeymsla er í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.

Næsta umhverfi:
Eignin er vel staðsett í fjölskylduvænu og grónu íbúðarhverfi í Grafarvogi. Örstutt er í skóla, verslun og þjónustu í Spönginni, sundlaug, golfvöll, Egilshöllina og fjölbreytta útivist.

Framkvæmdir síðustu ára samkvæmt upplýsingum frá eigendum:
- Skipt um glugga á norðurhlið.
- Skipt um járn á þaki árið 2023.
- Skápar settir upp í þvottahúsi.
- Hleðslustöðvar settar upp á bílastæði.

Allar nánari upplýsingar veitir Einar Örn Ágústsson í síma 888-7979 eða á einar@hraunhamar.is.

Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
 
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Hraunhamar
66.900.000 kr.778 þ./m²
+28,9% á 5 árum
15. febrúar 2022Þinglýstur kaupsamningur
51.900.000 kr.603 þ./m²
+130,7% á 8 árum
6. september 2013Fyrsta sala
22.500.000 kr.262 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Breiðavík 24

112 Reykjavík · Grafarvogur
TegundFjölbýlishúsStærð86 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
66.900.000 kr.778 þ./m²
Byggingarár1996InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2223269Fasteignamat66.450.000 kr.Brunabótamat43.930.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarhraun 10, 220 HafnarfjörðurSími520-7500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 23 myndir

Upp ↑