fasteignasölur.is
Dalahraun 7
1 af 33

Um eignina

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:
Skemmtilegt 3-4 herbergja endaraðhús í nýju hverfi á Hveragerði.
Húsið er timburhús, klætt að utan með lituðu járni, litað járn er á þaki.
Heildarstærð íbúðarinnar er 101,4m2.
Að innan skiptist eignin í anddyri, stofu, eldhús, 2 svefnherbergi, geymslu (sem má nýta sem svefnherbergi), baðherbergi og þvottahús.
Nánari lýsing:
Flísar eru á gólfi í forstofu og þar er fataskápur.
Baðherbergi er flísalagt, bæði gólf og hluti veggja en þar er fín innrétting með handlaug, upphengt salerni og gólfsturta.
Herbergin eru parketlögð og eru fataskápar í þeim öllum (einnig í geymslu).
Stofa og eldhús eru í opnu rými og er parket á gólfi. Útgengt er á baklóð úr stofu.
Þvottahúsið er flísalagt og þar er góð innrétting.
Bílaplan er hellulagt og er timburpallur með potti á baklóð.
Lóðin er villigarður með lyngþökum frá Torf.is. Í garðinum eru 7 ólíkar gerðir af trjám sem dafna vel.
Gólfhiti er í húsinu.

Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.
arborgir@arborgir.is eða í síma 482-4800.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er: 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% fyrir fyrstu kaupendur og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. kr. 3.800,- hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda skv. gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Árborgir - Fasteignasala
74.900.000 kr.739 þ./m²
+31,4% á 5 árum
25. mars 2022Þinglýstur kaupsamningur
57.000.000 kr.562 þ./m²
+46,2% á 1 ári
12. nóvember 2021Fyrsta sala
39.000.000 kr.385 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Dalahraun 7

810 Hveragerði
TegundRað-/parhúsStærð101,4 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
74.900.000 kr.739 þ./m²
Byggingarár2021InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2514372Fasteignamat74.550.000 kr.Brunabótamat59.700.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangAusturvegi 6, 800 SelfossSími482-4800

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 33 myndir

Upp ↑