fasteignasölur.is
Ofanleiti 27
Opið hús á morgun kl. 13:00–13:30
1 af 30

Um eignina

Aldir Fasteignir og Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali (s:694-4112 / freyja@aldirfasteignir.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:
Rúmgóð og falleg, 3ja herbergja íbúð á 4. hæð í eftirsóttu hverfi við Ofanleiti 27 í Reykjavík. Eignin er vel staðsett í nálægð við stofnbrautir, skóla, alla helstu þjónustu og verslun. Bílastæði eru sameiginleg á lóð hússins. 

Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:

Íbúð 88,1 fm merkt 01-0402.

Nánari lýsing eignar:
Forstofa
með góðum skáp með rennihurðum og parket á gólfi.
Stofa/borðstofa er í björtu rými með stórum gluggum og parket á gólfi, útgengt á svalir.
Eldhús með innréttingu og nettri eldunareyju sem hægt er að sitja við, span helluborð og tengi fyrir uppþvottavél, borðkrókur og parket á gólfi. Þvottahús er inn af eldhúsi.
Svefnherbergi I með fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi II með parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með sturtuklefa og innréttingu undir vask með skúffum.
Þvottahús er inn af eldhúsi með skolvaski og hillum, málað gólf.
Geymsla er innan íbúðar með hillum, dúkur á gólfi.
Sameiginleg hjóla-og vagnageymsla á jarðhæð.

Allar nánari upplýsingar veitir Freyja Rúnarsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 694 4112 eða freyja@aldirfasteignir.is

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Aldir fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Aldir Fasteignir
73.900.000 kr.839 þ./m²
+13,7% á 3 árum
11. október 2023Þinglýstur kaupsamningur
65.000.000 kr.738 þ./m²
+0,0% á 1 ári
28. júlí 2022Þinglýstur kaupsamningur
65.000.000 kr.738 þ./m²
+0,0% á 1 ári
24. maí 2022Fyrsta sala
65.000.000 kr.738 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Ofanleiti 27

103 Reykjavík · Kringlan/Hvassaleiti
TegundFjölbýlishúsStærð88,1 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
73.900.000 kr.839 þ./m²
Byggingarár1984InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2032406Fasteignamat73.800.000 kr.Brunabótamat48.000.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðasmára 14, 201 KópavogiSími530-6500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 30 myndir

Upp ↑