fasteignasölur.is
Ögurás 7
Opið hús 16. nóv. kl. 17:00–17:30
1 af 33

Um eignina

Fasteignasalan TORG kynnir: Einstaklega bjarta og glæsilega íbúð á efri hæð með sérinngangi við Ögurás 7, Garðabæ.
Um er að ræða frábæra eign sem er skráð 113,1 fm og þar af er geymsla 7,1 fm. Eignin er vel skipulögð 4ja herbergja með suðvestursvalir og stórkostlegu útsýni meðal annars niður að sjó. Eftirsótt og fjölskylduvæn staðsetning í Ásahverfinu þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla, leikvelli og frábærar grænar gönguleiðir. 
Allar nánari upplýsingar veitir Andrea Lárusdóttir aðstoðarm. lgf. í GSM: 861-0125 eða andrea@fstorg.is og/eða Sigurður Gunnlaugsson fasteignasali.

Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með tvöföldum fataskáp undir yfirhafnir, flísar á gólfi. 
Eldhús: Endurnýjað árið 2016. Frábært skipulag með viðar innréttingu og dökkum quarts stein á borði. Stór eyja sem hægt er að sitja við, spanhelluborð með innbyggðum gufugleypi. Flísar á gólfi. 
Stofa: Stofan er samliggjandi eldhúsi, einstaklega björt og falleg. Einkennist af stórum gluggum og mikilli lofthæð eða allt að 4,16 metrum. Glæsilegur óhindraður horngluggi sem gerir heilmikið fyrir rýmið. Gott útsýni er frá stofu og útgengt er á 7,4 fm suðvestursvalir. Viðarparket á gólfum.
Svefnherbergi: Herbergin eru þrjú á svefnherbergjagangi og öll með góðum fataskápum. Viðarparket á gólfum.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, sturta/baðkar með glerskilrúmi. Viðar innrétting og spegla efriskápar fyrir ofan salerni ásamt led-spegli. Salerni er upphengt og handklæðaofn er í þvottarými inn af baðherbergi.
Þvottahús: Rúmgott, innangengt af baðherbergi, hvít innrétting, annars vegar með vinnuborði öðru megin og þvottaaðstöðu hinu megin. Handklæðaofn. Flísar á gólfi.
Geymsla: Skráð 7,1 fm inn af eigninni sem eigendur nýta sem skrifstofu í dag.
Bílastæði: Eru malbikuð, sameiginleg á lóð með einni rafhleðslustöð fyrir bíla og tengi til að bæta við fleirum. Snjóbræðsla er á plani og á stétt fyrir framan hús. 
Sameign: Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á lóð.

Frekari upplýsingar: Ögurás 7 er sérlega góð, glæsileg og vel skipulögð eign sem hentar einkar vel fyrir þá sem vilja meira næði í minna fjölbýlishúsi með sérinngangi og góðri aðkomu. Eign með frábæru útsýni í fjölskylduvænu hverfi. 
Stutt er í alla þjónustu, leikskóla, íþróttamannvirki, grunn- gagnfræðiskóla sem og spark- og leikvelli í göngufæri.

Endurbætur að sögn seljanda: 

- Eldhús endurnýjað árið 2016, rafvirki lagði nýtt rafmagn í eyju. Veggur milli forstofu og eldhúss framlengdur. 
- Þakið var yfirfarið og málað árið 2018. 
- Skipt um gler í hjónaherbergisglugga. Árið 2025 voru allir gluggar yfirfarnir og gert við þá glugga sem talin var þörf á.
- Nýr ofn undir hornglugga.

Allar nánari upplýsingar veitir Andrea Lárusdóttir aðstoðarm. lgf. í GSM: 861-0125 eða andrea@fstorg.is og/eða Sigurður Gunnlaugsson fasteignasali.

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignasalan TORG
104.900.000 kr.927 þ./m²
+176,1% á 12 árum
21. apríl 2015Þinglýstur kaupsamningur
38.000.000 kr.336 þ./m²
+8,6% á 2 árum
29. maí 2013Þinglýstur kaupsamningur
35.000.000 kr.309 þ./m²
+7,7% á 6 árum
16. júlí 2007Fyrsta sala
32.500.000 kr.287 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Ögurás 7

210 Garðabær
TegundFjölbýlishúsStærð113,1 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
104.900.000 kr.927 þ./m²
Byggingarár2000InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2244533Fasteignamat88.700.000 kr.Brunabótamat60.950.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 33 myndir

Upp ↑