fasteignasölur.is
Sandbakki 12
1 af 28

Um eignina

Fasteignasalan TORG og Helgi Jónsson lgfs 780-2700 kynna : 
Gullfallegt og vandað tveggja hæða raðhús við Sandbakka 12 á Höfn í Hornafirði. Húsið er staðsteypt, skráð 134,2fm, byggt 1994. Stórar verandir eru beggja vegna hússins. Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, þvottahús/geymslu og á efri hæð eru þrjú svefnherbergi, baðherbergi og sjónvarpshol. Svalir eru frá einu herbergjana. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is

NÁNARI LÝSING : 
Neðri hæð:

Forstofa með fataskáp, flísar á gólfi. Hol með parketi á gólfi. Rúmgóð og björt stofa með parketi á gólfi, útgengt út á stóra vestur verönd með skjólveggjum. Eldhús og borðstofa mynda eitt rými, parket á gólfum. Eldhúsið er með snyrtilegri innréttingu með sprautulökkuðum hurðum, tengi fyrir uppþvottavél, flísar á milli skápa. Innaf eldhúsi er gott þvottahús með máluðu gólfi, útgengt út í afgirtan garð með verönd og skjólveggjum. Baðherbergi með sturtu, innréttingu við vask, flísar á gólfi og veggjum. Á milli hæða er steyptur stigi með parketi á gólfi.
Efri hæð:
Komið er upp í gott sjónvarpshol með parketi á gólfi, upptekið loft með þakglugga. Hjónaherbergi með skápum, parket á gólfi. Tvö góð svefnherbergi, parket á gólfi. Útgengt er frá öðru herbergjana út á vestur svalir með mjög fallegu útsýni út á fjörðinn og til jökla. Baðherbergi með hornbaðkari, innréttingu við vask, flísar á gólfi og baðþiljum á veggjum. 

Lóðin er með skjólveggjum og pöllum bæði við báða innganga. Bifreiðastæðið er malbikað og bílskúrsréttur fylgir þessari íbúð.
Húsfélag er virkt í raðhúsinu og er sameigninlega staðið af utanhússviðgerðum og málningu.
Húsið var málað að utan 2024. Skipt var um allt gler og lista 2023. Skipt var um einn glugga á efri hæð 2026 ásamt því að byggður var ný verönd með skjólgirðingu fyrir framan hús. Þvottahús var einnig tekið í gegn, flísalagt og sett upp innrétting. Fasteignamat fyrir 2027 verður 55.700.000.-kr.

Mjög snyrtileg og vel skipulögð eign í göngufæri við alla helstu þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is
 

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignasalan TORG
59.900.000 kr.446 þ./m²
+27,4% á 4 árum
28. mars 2023Þinglýstur kaupsamningur
47.000.000 kr.350 þ./m²
+4,4% á 1 ári
20. júní 2022Þinglýstur kaupsamningur
45.000.000 kr.335 þ./m²
+25,0% á 1 ári
15. mars 2021Fyrsta sala
36.000.000 kr.268 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Sandbakki 12

780 Höfn (Hornafjörður)
TegundRað-/parhúsStærð134,2 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.2
59.900.000 kr.446 þ./m²
Byggingarár1994InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2216954Fasteignamat55.350.000 kr.Brunabótamat74.050.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑