fasteignasölur.is
Samtún 32
Opið hús 17. nóv. kl. 17:00–17:30
1 af 21

Um eignina

RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Töluvert endurnýjuð, björt og falleg 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á efri hæð. 
Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Í kjallara eru sérgeymsla og þvottaherbergi sem tilheyra íbúðinni, auk geymslurýmis í risi. Aftan við húsið er stór sólpallur sem er sameiginlegur með íbúð neðri hæðar.

Helstu kostir eignarinnar:

- Sérinngangur og engin íbúð fyrir ofan.
- Björt stofa með gluggum á tvo vegu.
- Tvö svefnherbergi.
- Eldhús og baðherbergi hafa verið endurnýjuð.
- Nýlegir gluggar í allri íbúðinni.
- Rafmagns-, hitaveitu- og neysluvatnslagnir innan íbúðar hafa verið endurnýjaðar.
- Drenað í kringum húsið árið 2024.
- Sérgeymsla og þvottaherbergi í kjallara.


Nánari lýsing:
Forstofa:
Gengið er upp steyptar útitröppur að sérinngangi íbúðarinnar. Dökkar flísar eru á gólfi forstofu.
Hol: Miðsvæðis í íbúðinni er hol með harðparketi á gólfi og innfelldu fatahengi. Úr holi er aðgengi að öðrum rýmum íbúðarinnar.
Stofa: Björt og notaleg stofa með harðparketi á gólfi og gluggum á tvo vegu. Rými er fyrir bæði setustofu og borðstofu.
Eldhús: Falleg hvít innrétting í vinkil með viðarborðplötum og efri skápum, að hluta með glerhurðum. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Dökkar flísar á gólfi og gluggi yfir vinnuaðstöðu.
Svefnherbergi: Tvö björt svefnherbergi með harðparketi á gólfum.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með sturtu og glerþili, hvítri vaskinnréttingu, speglaskápum, upphengdu salerni og handklæðaofni. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu. Baðherbergið hefur verið stækkað (stærra en á grunnmynd).
Geymslur: Sérgeymsla fylgir í kjallara og einnig er geymslurými í risi yfir íbúðinni.
Þvottaherbergi: Í kjallara er þvottaherbergi sem tilheyrir íbúðinni.
Útisvæði: Stór sólpallur aftan við húsið er sameiginlegur með íbúð neðri hæðar. Framan við húsið er hellulögð stétt sem var endurnýjuð árið 2024, ásamt palli/stétt neðan við útitröppur.

Viðhald og endurbætur samkvæmt upplýsingum seljanda:
2020:
Útihurð þétt og máluð og sett ný póstlúga.
2022: Þakpappi og þakplötur endurnýjuð, settur nýr þakgluggi og strompur klæddur.
2024: Drenað í kringum húsið og settur brunnur. Skólplagnir framan við húsið myndaðar og reyndust í lagi samkvæmt upplýsingum seljanda. Eldri skólplögnum hefur verið skipt út fyrir plastlagnir. Stétt framan við hús hellulögð og gerður nýr pallur/stétt neðan við tröppur. Þrýstijafnari settur á heitt vatn. Ljósleiðari lagður í húsið.
2025: Nýr ofn settur í eldhús. Ofnar íbúðarinnar nýlega yfirfarnir.
Húsið hefur jafnframt verið steinað að utan og rennur endurnýjaðar. 

Athugið: Meðfylgjandi grunnmynd sýnir ekki stækkun baðherbergis inn í annað svefnherbergið og endurspeglar því ekki að fullu núverandi herbergjaskipan.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / brynjar@remax.is

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · RE/MAX
61.900.000 kr.958 þ./m²
+62,9% á 7 árum
11. mars 2020Þinglýstur kaupsamningur
38.000.000 kr.588 þ./m²
+3,5% á 2 árum
17. nóvember 2017Þinglýstur kaupsamningur
36.700.000 kr.568 þ./m²
+31,1% á 2 árum
27. ágúst 2015Fyrsta sala
28.000.000 kr.433 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Samtún 32

105 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð64,6 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
61.900.000 kr.958 þ./m²
Byggingarár1942InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2009561Fasteignamat56.450.000 kr.Brunabótamat30.700.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 21 myndir

Upp ↑