fasteignasölur.is
Árskógar 6
Opið hús 16. nóv. kl. 13:00–13:30
1 af 28

Um eignina

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Falleg og rúmgóð 3ja herbergja íbúð á 5. hæð í lyftuhúsi fyrir 60 ára og eldri að Árskógum 6, 109 Reykjavík.
Húsið hefur fengið gott viðhaldið í gegnum árin

* Yfirbyggðar svalir
* Húsvörður á staðnum
* Ýmis félagsstarfsemi
* Sameiginlegur matsalur á jarðhæðinni


Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. palli@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð eign samkv. HMS er 93,60 m2 

Eignin skiptist í hol, eldhús, borðstofu / stofu, svalir, 2 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.
Hol er með parket á gólfi og fataskáp.
Eldhús er með u-laga innréttingu, bakarofn í vinnuæð, helluborð, vifta og tengi fyrir uppþvottavél. Parket á gólfi.
Borðstofa / stofa er með parket á gólfi og útgengt út á yfirbyggðar svalir.
Svefnherbergi 1 er með parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi.
Baðherbergi er dúklagt með innréttingu með handlaug og skápum, upphengdu wc, walk-in sturtu og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla í sameign er skráð 4,2 m2 samkv. HMS.

Um er að ræða bjarta og rúmgóða 3ja herbergja íbúð í eftirsóttu og vel viðhöldu húsi sem er ætlað fyrir 60 ára og eldri sem eru félagsmenn í Félagi eldri borgara.
Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin og er húsvörður starfandi í húsinu. Að auki er í boði mikil þjónusta í húsinu og má meðal annars nefna sameiginlegan matsal á jarðhæðinni sem býður upp á heitan mat í hádeginu. Ýmis félagsstarfsemi fer einnig fram á jarðhæðinni auk þess sem hárgreiðslustofa og fótaaðgerðarstofa eru starfræktar þar.

Góð aðkoma er á lóðina sem er fullfrágengin og með nægum bílastæðum. Stutt í helstu þjónustu, s.s. verslanir, heilsugæslu ofl.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Pálsson fasteignasala
79.900.000 kr.854 þ./m²
+17,5% á 4 árum
18. janúar 2023Þinglýstur kaupsamningur
68.000.000 kr.726 þ./m²
+103,0% á 15 árum
8. nóvember 2007Fyrsta sala
33.500.000 kr.358 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Árskógar 6

109 Reykjavík · Bakkar/Seljahverfi
TegundFjölbýlishúsStærð93,6 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
79.900.000 kr.854 þ./m²
Byggingarár1992InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2053900Fasteignamat71.350.000 kr.Brunabótamat49.550.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangEngjateigur 3, 105 RekjavíkSímiPálsson

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑