Um eignina
Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is
Nánari skráning og stærðir:
Samkvæmt skráningu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) er birt heildarstærð eignarinnar 163,2 fm, þar af:
Íbúðarrými: 150,5 fm
Sérgeymsla í kjallara: 12,7 fm
Bílastæði: Sérmerkt stæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu.
Nánari lýsing:
Forstofa / Anddyri: Gengið er beint út úr lyftunni inn í rúmgott anddyri lagt ljósum gólfflísum. Þar eru sérsmíðaðir, loftháir fataskápar úr hlýlegum viði með miklu geymsluplássi. Úr anddyri er tvískipt gengið inn í íbúðina: annars vegar um faglega glerhurð inn í stofu/alrými og hins vegar um rennihurð beint inn í eldhús. Hefðbundin inngangshurð liggur einnig út í stigagang hússins.
Gestasalerni: Staðsett við anddyri. Flísalagt í hólf og gólf með ljósum flísum og skrautlista. Vegghengt salerni með innbyggðum kassa, vönduð viðarinnrétting undir handlaug, spegill og glerhilla.
Stofa og borðstofa: Einstaklega stórt, bjart og glæsilegt alrými lagt eikarparketi. Rýmið rúmar með góðu móti stórt borðstofuborð og býður upp á aðstöðu fyrir tvöfalda setustofu (sjónvarpsstofu og formlega stofu). Stórir gluggar ramma inn borgina og fjallasýn. Útgengt er á aðrar hálfhringlaga útsýnissvalirnar.
Eldhús: Sérlega rúmgott eldhús flísalagt með ljósum gólfflísum. Vönduð viðarinnrétting með stálhöldum, góðu vinnuplássi og miklu skápaplássi. Innbyggður ofn í vinnuhæð, keramikhelluborð, veglegur háfur úr burstuðu stáli, tvöfaldur vaskur og glerskápar með innbyggðri lýsingu. Gluggi yfir vaski veitir fallega dagsbirtu og útsýni. Innan eldhússins er rúmgóður borðkrókur fyrir daglegar máltíðir.
Sjónvarpshol: Opið og bjart fjölnotarými við svefngang og stofu sem hentar einstaklega vel sem vinnuaðstaða, sjónvarpsstofa eða lestrarstofa. Úr rýminu er útgengi á aðrar bogadregnar svalir íbúðarinnar.
Hjónasvíta: Sérlega rúmgott og rólegt svefnherbergi lagt eikarparketi með stórum glugga. Innaf herberginu er sér fataherbergi (walk-in closet) með rennihurð og sérsniðnum innréttingum, ásamt beinu innangengi inn á aðalbaðherbergi.
Baðherbergi: Sérlega rúmgott baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf með hvítum veggflísum og gráum gólfflísum. Innréttað með sér sturtuklefa með glerhurðum, innbyggðu flísalögðu baðkari, upphengdu salerni, handklæðaofni, opnanlegum glugga og vandaðri viðarinnréttingu með steinplötu.
Þvottahús: Sérþvottahús innan íbúðar, staðsett inn af aðalbaðherbergi. Innréttað með vönduðum hvítum skápum, vinnuhæð fyrir þvottavél og þurrkara, stálskolvaski, ofni og glugga sem tryggir góða loftun.
Svefnherbergi II: Bjart og rúmgott herbergi lagt eikarparketi með stórum glugga og veglegum, innbyggðum fataskápum úr viði sem ná upp í loft og tóna við innihurðir.
Svalir: Tvennar hálfhringlaga útsýnissvalir sem setja sterkan og fágaðan svip á íbúðina og bjóða upp á víðfeðmt útsýni til sjávar, borgar og fjalla.
Bílastæði og geymsla: Sérmerkt stæði fylgir í lokaðri, upphitaðri bílageymslu hússins með lokaðri akstursrák.
Geymsla: Í kjallara er jafnframt rúmgóð 12,7 fm sérgeymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Staðsetning og nærumhverfi.
Eignin er staðsett á afskaplega rólegum og grónum stað í 105 Reykjavík. Göngufjarlægð er í miðbæ Reykjavíkur, Höfða ásamt fallegum gönguleiðum meðfram sjónum. Öll helsta þjónusta, matvöruverslanir, heilsugæsla, skólar og veitingastaðir eru í næsta nágrenni, auk þess sem örstutt er í útivistar- og íþróttasvæðin í Laugardalnum (Laugardalslaug, Grasagarðinn og World Class).
Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur hreidar@betristofan.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Verðsaga
2 þinglýstir kaupsamningarHeimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Borgartún 30A
Staðsetning
Allar 29 myndir
Upp ↑



























