fasteignasölur.is
Álfaskeið 90
Opið hús 16. nóv. kl. 16:30–17:00
1 af 28

Um eignina

Hraunhamar kynnir sérlega fallega og mikið endurnýjaða 4-5 herbergja íbúð á þriðju hæð á þessum góða stað miðsvæðis í Hafnarfirði, íbúðin er 118,1 fm og geymsla 5,5 fm auk bílskúrs sem er 23,7 fm samals 141,1 fm. 


Skipting eignarinnar: Forstofa, hol, stofa, borðstofa, eldhús með borðkróki, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymsla og bílskúr. 

Nánari lýsing: 
Forstofa með fataskápum. 
Gott hol.
Eldhús með smekklegri innréttingu,  gashelluborð. eyja. 
Innaf eldhúsinu er þvottahús með innréttingu. Skolvaskur. 
Björt og fín stofa og borðstofa og þaðan er utangengt út á fínar svalir.  Auðvelt að koma fyrir herbergi þar sem borðstofa er í dag. 
Hjónaherbergi með fataskápum. 
Rúmgott herbergi (tvö herbergi á teikningu), auðvelt að koma fyrir einum vegg þannig að þetta verði tvö herbergi eins og er á teikningum. 
Fallegt uppgert flísalagt baðherbergi með innrétttingu. Sturtuklefi.  
Í sameign er geymsla auk reglubundinnar sameignar. þ.e. hjóla-og vagnageymsla. 

Snyrtilegur bílskúr flísalagður með rafmagni, rafmagnsopnari.  heitt og kalt vatn í skúrnum. 

Gólfefni eru parket og flísar. 

Þetta er falleg og mikið endurnýjuð eign, s.s. baðherbergi, gólfefni og innréttingar. 

Skv. upplýsingum seljenda hafa eftirfarandi framkvæmdir verðið gerðar undanfarin ár. 
Helstu framkvæmdir við Álfaskeið 90-92 
Fyrir um 15 árum var skipt um þak og plata undir þaki einangruð með steinull 
2016 - 2017: Skipt um gler og gluggalista
2018: Skólplagnir fóðraðar undir húsinu út í brunn
2022: Timbri á girðingu skipt út og hefur verið borið á á tveggja ára fresti síðan
2022-2023: Húsið tekið í gegn að utan, sprungur lagfærðar, skipt um glugga sem voru lélegir, hús og þak málað.
2024 : Nýtt rafmagns inntak tekið inn í bílskúra og lagt fyrir hleðslustöðvum
2025 : Bílskúrar teknir í gegn, sprungur lagfærðar, múrað,  þakpappi settur á og skúrar málaðir.
2026 :Ný úti lýsing sett upp á bílskúra
Svo íbúðin okkar og sameign
Búið er að skipta út raflögnum í íbúðinni ásamt tenglum og slökkvurum, tafla hefur ekki verið endurnýjuð.
2021 málum við sameiginlegt þvottahús, geymslu gagna og hjólageymslu og settum Epoxi á gólf
Búið að skipta um tengla og slökkvara í sameign

Nánari upplýsingar veitir Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali, hlynur@hraunhamar.is. s.698-2603

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
 
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Álfaskeið 90

220 Hafnarfjörður
TegundFjölbýlishúsStærð141,8 m²Herbergi5Svefnherb.3Baðherb.1
85.000.000 kr.599 þ./m²
Byggingarár1966InngangurSameiginlegurBílskúrJáFasteignanúmerF2073023Fasteignamat80.250.000 kr.Brunabótamat72.790.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarhraun 10, 220 HafnarfjörðurSími520-7500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑