fasteignasölur.is
Lambholt 5
1 af 53

Um eignina

Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.8969565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu:
Lambholt 5, snoturt 64fm sumarhús á 1,2ha eignarlóð í landi Hæðarenda í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Eignarlóð, hitaveita, heitur pottur og fallegt útsýni.

Húsið stendur á steyptum bitum og er upphaflega 12,9fm bjálkahús, byggt á staðnum og síðar stækkað á ýmsa lund, eitthvað misræmi er þó milli teikninga og raungerðar hússins og stærð.
Stofa/alrými er bjart og rúmgott og eldhús í einu horni þess.  Svefnherbergin eru tvö, tvíbreitt rúm og fataskápur í öðru og koja í hinu. Baðherbergið er með klósetti, sturtu og handlaug á skáp. Harðparket á öllum gólfum.  Undir fremsta hluta pallsins er einangruð geymsla með steyptu gólfi að mestu,  lagnagrindin þar með forhitara, stýringar fyrir heita pottinn og gert ráð fyrir tengingu fyrir þvottavél.
Húsið er klætt að utan með liggjandi viðarklæðningu, vandaðir plastgluggar í hluta þess en eldri trégluggar í hinu, útihurð úr áli og bárujárn á þaki. Ágætur pallur á þrjá vegu við húsið og nýr heitur pottur í skjólsælu horni neðan við hann og stór geymsla undir. 
Inni var húsið tekið í gegn og endurnýjað mikið fyrir um tíu árum. Þá var m.a. sett harðparket á öll gólf og hresst upp á eldhúsinnréttingu. En nú hefur nýlega aftur verið tekið til hendinni, húsið málað inni og úti, uppþvottavél endurnýjuð, sett sturta á baðherbergið og úti- og innihurðir endurnýjaðar, útbúin stór geymsla undir pallinum og frágangur frárennslislagna bættur. 
Við húsið hefur verið komið fyrir ræktunarkössum og plantað trjám vítt og breytt um lóðina sem er afgirt á alla kanta.
Mjög gott 5G samband, Netatmo verðurstöð og tvær eftirlitsmyndavélar við húsið.
Lóðin er stór eignarlóð, 1,2ha eða 12000fm, mosa- og lyngivaxið hraun og ágætis berjaland.
Fallegt útsýni, öryggishlið inná svæðið og malbikað nánast heim að húsi. 

- - VINSAMLEGAST BÓKIÐ EINKASKOÐUN - -


Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar og sýnir eignina.
S. 896 9565    loftur@husfasteign.is  
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup)  lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800.- af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
 
Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Verðsaga

4 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · HÚS fasteignasala
33.900.000 kr.530 þ./m²
+57,7% á 3 árum
14. september 2023Þinglýstur kaupsamningur
21.500.000 kr.1667 þ./m²
−3,2% á 1 ári
27. október 2022Þinglýstur kaupsamningur
22.200.000 kr.1721 þ./m²
+5,7% á 1 ári
10. júní 2022Þinglýstur kaupsamningur
21.000.000 kr.1628 þ./m²
+250,0% á 7 árum
28. maí 2015Fyrsta sala
6.000.000 kr.465 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Lambholt 5

805 Selfoss (dreifbýli)
TegundSumarhúsStærð64 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
33.900.000 kr.530 þ./m²
Byggingarár1998InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2235175Fasteignamat38.600.000 kr.Brunabótamat5.240.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangAusturvegi 26, Selfoss, Strandgötu VestmannaeyjumSími497-1155

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 53 myndir

Upp ↑