fasteignasölur.is
Eskihlíð 22
Opið hús á morgun kl. 12:00–12:30
1 af 17

Um eignina

Fasteignasalan Garður 

HLÍÐARNAR: 4RA HERBERGJA ÍBÚÐ Í VEL VIÐHÖLDNU HÚSI - Möguleiki að færa eldhús og bæta við þriðja-fjórða herberginu. 
Baldur fasteignasali, beinn sími 450-0000, kynnir: Í einkasölu fallega og rúmgóða 4ra herbergja íbúð á 1. hæð í vel viðhöldnu fjölbýlishúsi við Eskihlíð 22 í Hlíðunum, 105 Reykjavík.

Íbúðin skiptist í rúmgott miðrými, eldhús, tvö svefnherbergi, samliggjandi stofur (það er hægt að nota aðra stofuna sem þriðja svefnherbergið) og borðstofu með rennihurð á milli og baðherbergi. Úr stofu er útgengt á vestursvalir. Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin, meðal annars allsherjar viðhald utanhúss árið 2020, hússjóður stendur vel. Stutt er í Öskjuhlíð, Nauthólsvík, Háskólann í Reykjavík, Klambratún og miðbæ Reykjavíkur.

Stærð eignarinnar er 95,70 fermetrar samkvæmt skráningu HMS. Íbúðinni fylgir jafnframt um 4,6 fermetra sérgeymsla í kjallara samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu, sem er ekki innifalin í skráðri stærð. Rétt stærð er því uþb. 100,3 fermetrar.

Aðal sölupunktar:
  • Vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 1. hæð
  • Samliggjandi stofa og borðstofa með rennihurð, borðstofan nýtist vel sem þriðja svefnherbergið
  • Möguleiki á að færa eldhús inn í stofu og bæta við svefnherbergi, lagnir eru til staðar og fordæmi eru fyrir því í stigaganginum
  • Ssvalir út frá stofu
  • Hjónaherbergi uppgert 2024 til 2025
  • Rofar og tenglar endurnýjaðir 2023
  • Viðhald utanhúss 2020
  • Stigagangur tekinn í gegn 2022 og eldvarnir í sameign bættar 2025
  • Hússjóður stendur vel
  • Sérgeymsla, sameiginlegt þvottahús og hjóla-, vagna- og dekkjageymsla
  • Eftirsótt staðsetning í Hlíðunum
Íbúðin skiptist í miðrými/hol, eldhús, stofu, borðstofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Þá fylgir íbúðinni jafnframt sérgeymsla í kjallara og hlutdeild í sameiginlegu þvottahúsi, hjóla- og vagnageymslu og dekkjageymslu.

Nánari lýsing:
Miðrými / hol: Rúmgott miðrými sem tengir öll rými íbúðarinnar. Fataskápur, flísar við inngang og parket á gólfi.
Eldhús: Hvít innrétting, flísar á milli efri og neðri skápa og tengi fyrir uppþvottavél. Parket á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með parketi á gólfi og útgengi á vestursvalir.
Borðstofa: Samliggjandi stofu með rennihurð á milli. Rúmgott rými sem nýtist sem borðstofa eða þriðja svefnherbergið.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi, uppgert 2024 til 2025, með góðum fataskápum og nýju parketi á gólfi.
Svefnherbergi: Herbergi í góðri stærð með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtugleri, innrétting við handlaug, upphengt salerni og opnanlegur gluggi.
Geymsla: Sérgeymsla í kjallara, um 4,6 fermetrar samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús og góðar geymslur í sameign: hjóla- & vagnageymsla ásamt hitakompu sem notuð er sem dekkjageymsla.

Viðhald hússins:
  • 2000: Húsið endursteinað, gler og gluggapóstar endurnýjaðir.
  • 2001: Skipt um þakjárn.
  • 2011: Þak yfirfarið og málað. Nýtt dyrasímakerfi.
  • 2014: Frárennslislagnir fóðraðar/endurnýjaðar.
  • 2017: Þak yfirfarið og málað.
  • 2018: Sameign og kjallari yfirfarin og máluð.
  • 2020: Viðhald utanhúss. Húsið háþrýstiþvegið, endursteinað, múr- og sprunguviðgert og sílanborið. Sléttir fletir, tréverk og hurðir málaðir, gert við kanta, vatnsbretti, svalir og svalahandrið, þakkantur endurbættur og skipt um þá glugga og botnlista sem þurfti.
  • 2022: Stigagangur tekinn í gegn, skipt um teppi og málað.
  • 2025: Eldvarnir í sameign yfirfarnar og bættar.
Endurbætur á íbúð:
  • 2019: Nýr gluggi í borðstofu og geymslu, aðrir gluggar yfirfarnir.
  • 2023: Skipt um rofa og tengla.
  • 2024 til 2025: Hjónaherbergi uppgert.
Hússjóður: Hússjóður stendur vel. Rætt hefur verið um að malbika bílaplan á næstu árum.

Húsið: Eskihlíð 22 er steinsteypt fjögurra hæða fjölbýlishús byggt 1957.

Staðsetning: Hlíðarnar eru eitt eftirsóttasta hverfi borgarinnar og þaðan er stutt í allar áttir. Í næsta nágrenni eru Öskjuhlíð og Nauthólsvík með ylströndinni, Háskólinn í Reykjavík og Klambratún, og stutt er í Kringluna, skóla, leikskóla, alla helstu þjónustu og miðbæ Reykjavíkur.

Falleg og vel skipulögð íbúð í vel viðhöldnu húsi á frábærum stað í Hlíðunum.

Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski, löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000

Skoða meðmæli - Verðmat fasteigna - Greiðslumat.is - Að selja hjá Baldri

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Garður
79.900.000 kr.797 þ./m²
+81,6% á 8 árum
20. mars 2019Þinglýstur kaupsamningur
44.000.000 kr.460 þ./m²
+74,6% á 7 árum
28. ágúst 2012Fyrsta sala
25.200.000 kr.263 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Eskihlíð 22

105 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð100,3 m²Herbergi4Svefnherb.2Baðherb.1
79.900.000 kr.797 þ./m²
Byggingarár1957InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2030463Fasteignamat76.450.000 kr.Brunabótamat50.950.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarhraun 12, 220 HafnarfjörðurSími562-1200

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 17 myndir

Upp ↑