fasteignasölur.is
Brávallagata 16A
1 af 28

Um eignina

Fjárfesting fasteignasala ehf. og Ómar Örn Sigurðsson löggiltur fasteignasali kynna eignina Brávallagata 16A, 101 Reykjavík, nánar tiltekið eign
merkt 02-01, fastanúmer 200-4249 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Brávallagata 16A er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-4249, birt stærð 102.9 fm.
Þetta er einstaklega falleg og björt íbúð á frábærum stað í gamla Vesturbænum.
Komið er inn í anddyri/gang með parketi, rúmgóður fataskápur sem gengið er inn í.
Tvær stórar samliggjandi stofur með parketi á gólfi.
Eldhús er með hvítri eldri innréttingu og flísum á gólfi.
Barnaherbergi er rúmgott með stórum glugga og parketi.
Hjónaherbergi er með parketi á gólfi og stórum fastaskápum. Útgengt er á svalir.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og að hluta á veggjum. Þar er baðker og upphengt salerni og nýleg innrétting og góður skápur.
Risherbergi fylgir íbúðinni með þakglugga og getur nýst sem tölvuherbergi eða svefnherbegi.
Sérgeymsla íbúðar er einnig í risinu. 

Í sameign í kjallara er sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla.  Úr sameigninni er gengið út í fallegan gróinn garð. Bakgarður liggur að fallegum sameiginlegum stíg með Ásvallagötu, Ljósvallagötu og Blómvallagötu. 
Ýmsir möguleikar eru til að breyta íbúðinni, t.d. er auðvelt er að breyta stofu eða borðstofu í herbergi og hafa þannig þrjú svefnherbergi innan íbúðarinnar.

Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð undanfarin ár. Gler og gluggar á vesturhlið voru endurnýjaðir árið 2013, austurhluti var endurnýjaður 2005. Gert var við steyptar rennur og þakkant á milli húsanna 16a og 18 gerðar 2016. Neysluvatnslagnir endurnýjaðar í húsinu 2008 og frárennslis lagnir endurnýjaðar að hluta 2009. Rafmagn íbúðar og sameignar hefur verið endurnýjað og er nýlega tafla í íbúðinni. Þakið var yfirfarið og skipt um járn og þakglugga 2020.

Nánari upplýsingar veitir Ómar Örn Sigurðsson Lögg. fasteignasali, í síma 8970203, tölvupóstur omar@fjarfesting.is.

Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga.
2.Þinglýsingar af hverju skjali er 3800 kr.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun skv. gjaldskrá fasteignasölu.

Verðsaga

5 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Fjárfesting
92.900.000 kr.903 þ./m²
+19,3% á 4 árum
25. ágúst 2022Þinglýstur kaupsamningur
77.900.000 kr.757 þ./m²
+47,0% á 3 árum
12. desember 2019Þinglýstur kaupsamningur
53.000.000 kr.515 þ./m²
+27,7% á 4 árum
23. september 2015Þinglýstur kaupsamningur
41.500.000 kr.403 þ./m²
+26,9% á 2 árum
12. desember 2013Þinglýstur kaupsamningur
32.700.000 kr.318 þ./m²
+15,8% á 6 árum
18. mars 2008Fyrsta sala
28.250.000 kr.275 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Brávallagata 16A

101 Reykjavík · Miðbær/Vesturbær
TegundFjölbýlishúsStærð102,9 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
92.900.000 kr.903 þ./m²
Byggingarár1943InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2004249Fasteignamat86.900.000 kr.Brunabótamat55.100.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBorgartúni 31, 105 ReykjavíkSími562-4250

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑