fasteignasölur.is
Brávallagata 50
Opið hús á morgun kl. 15:00–15:30
1 af 31

Um eignina

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515, jason@betristofan.is og Betri Stofan kynna: 72,7 fermetra, 3ja herbergja íbúð, Brávallagata 50, 101 Reykjavík, 2. hæð til hægri. 
Íbúðin skiptist í hol, fatahengi, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi og stofu. 

Í kjallara er rúmgóð 15,9 fm sérgeymsla og sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi.

Komið er inn í parketlagt hol með eik. Þar innaf er lítil geymsla/fataskápur. Hvítar innihurðir eru í íbúðinni sem hefur verið töluvert endurnýjuð.
Eldhúsið er með harðparketi, nýrri borðplötu, eldhúsinnréttingu og borðkrók. 
Baðherbergið er endurnýjað og með baðkari og glugga. Handklæðaofn. 
Stofan er með harðparketi á gólfi.
Við hlið stofu er stórt hjónaherbergi með eikarparketi og hægt er að opna á milli rýma.
Svefnherbergi II er með eikarparketi á gólfi. 
Í kjallara er rúmgóð 15,9 fm sérgeymsla með glugga sem hefur verið skipt upp í tvö rými. 
Sameiginlegt þvottahús og einnig er sameiginlegt svæði í kjallara þar sem hverri íbúð hefur verið ráðstafað ákveðnu svæði til umráða.

Húsið að utan lítur vel út og hefur fengið hlotið gott viðhald. Íbúðin er í 4ra íbúða stigahúsi.

Lóðin er fullfrágengin og afgirt með hellulagðri stétt, grasflöt og trjábeðum og er í óskiptri sameign hússins.

Staðstetning eignarinnar er á vinsælum stað í vesturbænum þaðan sem stutt er í leikskóla, barnaskóla, Háskóla Íslands, Sundlaug Vesturbæjar, íþróttasvæði KR, Melabúðina, Kaffi Vest og fleira. 

Allar frekari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.


 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Betri Stofan fasteignasala
68.500.000 kr.942 þ./m²
+87,7% á 7 árum
24. febrúar 2020Fyrsta sala
36.500.000 kr.502 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Brávallagata 50

101 Reykjavík · Miðbær/Vesturbær
TegundFjölbýlishúsStærð72,7 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
68.500.000 kr.942 þ./m²
Byggingarár1937InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2004033Fasteignamat63.550.000 kr.Brunabótamat36.650.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 31 myndir

Upp ↑