fasteignasölur.is
Háaleitisbraut 41 - íbúð 203
Opið hús 16. nóv. kl. 17:15–17:45
1 af 35

Um eignina

Viltu fasteignir kynna Háaleitisbraut 41 sem er 4ra herbergja endaíbúð á annarri hæð. Tvennar svalir og fallegt útsýni.

Húsið hefur fengið reglulegt viðhald síðustu ár og er í góðu ástandi.

Hægt að sýna með stuttum fyrirvara flesta daga.
Eignin er laus við kaupsamning.

Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit, húsfélagsyfirlit og önnur sölugögn eignarinnar.

Eignin skiptist í forstofu/hol, samliggjandi stofu og borðstofu, eldhús, 3 svefnherbergi, baðherbergi, tvær geymslur og tvennar svalir.
Sami eigandi frá því húsið var byggt, íbúðin er nánast alveg upprunaleg með skemmtilegan 60s stíl, vel með farin og snyrtileg.

Húsið er mjög miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu og stendur hátt með fallegu útsýni. Samt langt frá stofnbrautum þannig að umferðarhávaði er í lámarki.

Árið 2025 var húsið yfirfarið af Verksýn og í framhaldinu ráðist í talsvers viðhald utanhúss.
-Ónýtum gluggum skipt út og aðrir yfirfarnir/lagfærðir
-Svalahurðir endurnýjaðar og svalagólf máluð
-Ýmsar múrviðgerðir og margt fleira.

Búið er að greiða allar framkvæmdir hægt er að nálgast skýrsluna frá Verksýn á sölusíðu eignarinnar

Eignin er skv. HMS 108m2 sem skiptist í 102,5m2 íbúð og tvær geymslur, 4,3m2 og 1,2m2

Þriggja stafa eikarparket er á allri íbúðinni fyrir utan baðherbergið sem er flísalagt.
Þráðlaus Danfoss hitastýring í hverju herbergi til að stjórna hita.

Nánari lýsing:
Forstofa: Frá sameign er gengið í forstofu/gang og þaðan er gengið í önnur rými íbúðarinnar. Útskot fyrir fatahengi og efri skápar.
Stofa/borðstofa: Samliggjandi og mjög rúmgóð í opnu og björtu rými. Stórir gluggar. Í stofu er lítill vinnukrókur sem m.v. teikningu er hægt að fjarlægja eða loka betur af og nýta sem fjórða svefnherbergið eða skrifstofu. Frá stofu er gengið út á svalir til suðurs.
Eldhús: Upphafleg 60's eldhúsinnrétting með ofn í vinnuhæð. Pláss fyrir eldhúsborð við glugga með fallegu útsýni til vesturs. Hægt er að ganga í eldhúsið bæði frá holi og frá borðstofu.
Baðherbergi: Flísalagt að mestu með skemmtilegum flísum. Baðkar með sturtuaðstöðu. Nett innrétting með speglaskáp.
Hjónaherbergi : Rúmgott og bjart með stórum innbyggðum fataskáp. Úr herberginu er útgengt á svalir til vesturs.
Herbergi 2: Gott og bjart herbergi með innbyggðum fataskáp.
Herbergi 3: Gott og bjart herbergi
Herbergisgangur: Á gangi er stór fataskápur sem nýtist vel, bæði fyrir herbergin og fyrir baðherbergið. Mögulega mætti koma fyrir þvottavél/þurrkara á þessum stað.
Þvottahús: Í sameign í kjallara er sameiginlegt þvottahús með sameiginlegum tækjum.
Geymsla: Í sameign í kjallara eru tvær sérgeymslur fyrir íbúðina. 4,3m2 og 1,2m2. Auk þess á hver íbúð skemmtilegan læstan skóskáp í sameign.
Í sameign er einnig sameiginleg hjólageymsla.

Eignin er á frábærum stað miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu þar sem stutt er í þjónustu, skóla/leikskóla og útvist í Laugardalnum

Nánari upplýsingar veita Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í 845-9000 / heidrekur@viltu.is eða Viltu fasteignir í síma 583-5000 / hvad@viltu.is

Viltu fasteignir bjóða fasta söluþóknun frá 995.000 kr. m.vsk
Allt innifalið.
Kynntu þér málið á Viltu.is

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Háaleitisbraut 41 - íbúð 203

108 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð108 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
78.900.000 kr.731 þ./m²
Byggingarár1964InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2014956Fasteignamat73.150.000 kr.Brunabótamat56.500.000 kr.
Skráð hjá
Heiðrekur Þór GuðmundssonLöggiltur fasteignasali845-9000 · heidrekur@viltu.is
HeimilisfangBæjarlind 2, 201Sími583-5000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 35 myndir

Upp ↑