fasteignasölur.is
Efstasund 4
Opið hús á morgun kl. 15:00–15:30
1 af 28

Um eignina

Borg fasteignasala kynnir til sölu fallega 2ja herbergja íbúð í kjallara við Efstasund í Reykjavík. Íbúðin skiptist í anddyri, hol, stofu, svefnherbergi, eldhús og baðherbergi. Inn af eldhúsi er auka herbergi sem er búið að stúka af sem skrifstofu. Sameiginlegt þvottahús er í sameign. 

Nánari lýsing: 
Hol
er parketlagt með geymslu inn af 
Stofa er með parketi.
Svefnherbergi er parketlagt og fataskápum. 
Eldhús er parketlagt með viðarinnréttingu. 
Baðherbergi er flísalagt með baðkari og nýlegri innréttingu. 
Inn af eldhúsi er búið að stúka af lítið herbergi. 
Þvottahús er sameiginlegt í sameign og hver með sýna vél. 

Skipt var um allar neysluvatnlangir í íbúðinni fyrir nokkrum árum. Húsið var málað fyrir nokkrum árum og þá var farið yfir þak og rennur . Dren og klóak var myndað fyrir rúmum 12 árum og reyndist þá allt vera í lagi. 
Húsið er skráð holsteinshús en við sjónskoðun má sjá þess merki að kjallarinn virðist vera allur steyptur. 

Nánari upplýsingar veitir Brandur Gunnarsson löggiltur fasteignasali-löggiltur leigumiðlari  í síma 897-1401 brandur@fastborg.is  hjá BORG fasteignasölu.
Forsendur söluyfirlits: 

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

 

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Borg Fasteignasala
52.900.000 kr.829 þ./m²
+15,0% á 3 árum
25. september 2023Þinglýstur kaupsamningur
46.000.000 kr.721 þ./m²
+228,6% á 13 árum
15. nóvember 2010Fyrsta sala
14.000.000 kr.219 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Efstasund 4

104 Reykjavík · Vogar
TegundFjölbýlishúsStærð63,8 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
52.900.000 kr.829 þ./m²
Byggingarár1945InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2017987Fasteignamat53.050.000 kr.Brunabótamat31.400.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSíðumúli 23, 108 ReykjavíkSími519-5500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑