fasteignasölur.is
Skipalón 10
Opið hús 16. nóv. kl. 17:00–17:30
1 af 21

Um eignina

Domusnova fasteignasala hefur fengið í einkasölu bjarta og rúmgóða 2ja herbergja íbúð í klæddu lyftuhúsi, við Skipalón 10, með stæði í bílgeymslu og hellulagðan sérafnotaflöt á lóð.  Eignin er laus við kaupsamning. Íbúð fyrir 50 ára og eldri. Fallegt útsýni til sjávar. 

Eignin Skipalón 10 íbúð 103 er skráð hjá HMS sem svo: birt stærð 73,5fm þar af geymsla í kjallara 10,7 fm, stæði í bílgeymslu merkt 22.

Skipulag íbúðarinnar:
Stofa: björt og rúmgóð, viðarparket á gólfi, útgengi á hellulagða verönd sem er sérafnotaflötur íbúðar.
Eldhús: opið inn í stofu. Góð innrétting frá Parka, viðarparket á gólfi. 
Gangur: viðarparket á gólfi, útifataskápur.
Herbergi: rúmgott, fataskápur, viðarparket á gólfi.
Baðherbergi: allt flísalagt, veggir og gólf, góð innrétting, sturtuklefi, handklæðaofn, upphengt klósett. 
Þvottaherbergi: flísar á gólfi, innrétting og tengi fyrir þvottavél.
Í kjallara er sérgeymsla íbúðarinnar. Hillur geta fylgt. 
Bílastæði í bílageymslu er merkt 22. Lagt er fyrir rafhleðslu en hleðslutengi ekki fyrir hendi. 

Í vel um genginni sameign er hjóla- og vagnageymsla, dekkjageymsla auk sérgeymsla. Auk þess er fundasalur sem er eign húsfélagins og er hann leigður til íbúða hússins og fleiri aðila.
Stutt í alla þjónustu og miðbæinn í Hafnarfirði, niður að höfn og á golfvöllinn.

Hér er myndband af eigninni með húsgögnum
Hér er hægt að fá söluyfirlit sent
Nánari upplýsingar veita:
Árni Helgason löggiltur fasteignasali / s.663 4290 / arni@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Domusnova fasteignasala
64.900.000 kr.883 þ./m²
+218,1% á 13 árum
13. ágúst 2013Fyrsta sala
20.400.000 kr.278 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Skipalón 10

220 Hafnarfjörður
TegundFjölbýlishúsStærð73,5 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
64.900.000 kr.883 þ./m²
Byggingarár2012InngangurSameiginlegurBílskúrJáFasteignanúmerF2304443Fasteignamat62.450.000 kr.Brunabótamat50.650.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðasmári 4, 2. hæð, 201 KópavogurSími527-1717

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 21 myndir

Upp ↑