fasteignasölur.is
Gunnarsbraut 34
Opið hús 17. nóv. kl. 17:00–17:30
1 af 29

Um eignina

Aldir Fasteignir og Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali (s:694-4112 / freyja@aldirfasteignir.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:
Björt og falleg, 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í þríbýlishúsi við Gunnarsbraut í 105 Reykjavík. Sérinngangur, tvö svefnherbergi og endurnýjað baðherbergi. Góð staðsetning í göngufæri við miðbæinn, stutt í stofnbrautir og alla helstu þjónustu. 

Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð er 62,3 fm merkt 01-0001, geymsla 2,4 fm merkt 01-0003 og geymsla 1,9 fm merkt 01-0004, samtals 66,6 fm að stærð.
Eignin samanstendur af forstofu, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi, eldhúsi og stofu ásamt sameiginlegu þvottahúsi og tveimur litlum geymslum.

Nánari lýsing eignar:
Forstofa með fatahengi, geymslurými á bak við fatahengi.
Stofa er í björtu rými með parket á gólfi.
Eldhús með tengi fyrir uppþvottavél, keramik helluborð og nettum borðkrók, parket á gólfi.
Svefnherbergi I með nýjum fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi II með parket á gólfi.
Baðherbergi er endunýjað, flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni og handklæðaofn.
Sameiginlegt þvottahús þar sem hver er með sína vél.
Sérgeymsla í sameign.

Samkvæmt gögnum var drenað kringum húsið, járn á þaki endurnýjað og þakkantur klæddur ca. árið 2005. Gróðursæll sameiginlegur garður með litlum leikkofa. Eignin er vel staðsett miðsvæðis í rólegu hverfi, í göngufæri við Klambratún og miðborgina. 

Allar nánari upplýsingar veitir Freyja Rúnarsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 694 4112 eða freyja@aldirfasteignir.is

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Aldir fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Aldir Fasteignir
59.900.000 kr.899 þ./m²
+14,1% á 3 árum
27. september 2023Þinglýstur kaupsamningur
52.500.000 kr.788 þ./m²
+52,2% á 4 árum
8. apríl 2019Þinglýstur kaupsamningur
34.500.000 kr.518 þ./m²
+72,5% á 5 árum
7. nóvember 2013Fyrsta sala
20.000.000 kr.300 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Gunnarsbraut 34

105 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð66,6 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
59.900.000 kr.899 þ./m²
Byggingarár1939InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2011972Fasteignamat56.150.000 kr.Brunabótamat33.450.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðasmára 14, 201 KópavogiSími530-6500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 29 myndir

Upp ↑