fasteignasölur.is
Bakkabraut 11 íb503
1 af 28

Um eignina

Fasteignasalan TORG kynnir: Penthouse-íbúð í nýju fjölbýlishúsi með glæsilegu sjávarútsýni, veglegum 62,5 m² suðurþaksvölum og 14,8 m² suðvestursvölum. Íbúðin er við Bakkabraut 11, merkt 0503, á 5. hæð (efstu). Eignin er staðsett við sjávarsíðuna á Kársnesi, í næsta nágrenni við smábátahöfnina. Íbúðin er einstaklega glæsileg, með gólfsíðum gluggum, mikilli lofthæð, tveimur rúmgóðum hjónasvítum, báðum með fataherbergjum, þremur baðherbergjum, þar af einu inn af stærri hjónasvítunni, og stóru alrými sem skiptist í setustofu, sjónvarpsstofu, borðstofu og eldhús, auk búrs, sérþvottahúss og forstofu. Alls er íbúðin skráð 205,9fm, þar af er íbúðin sjálf um 162,7fm, bílskúr (frístundaskúr merktur 0001) um 43,2fm, í bílakjallara ásamt tveimur bílastæðumi í bílakjallara, merkt: B19 og B20. Íbúðin er eingöngu sýnd í einkasýningu. Gert er ráð fyrir afhendingu vorið 2027.

Allar nánari uppl. veitir Margrét Rós fasteignasali í GSM: 856-5858 netfang margret@fstorg.is 


Nánari lýsing íbúðar 503: Glæsileg og rúmgóð útsýnisþakíbúð með stóraukinni lofthæð og veglegum þaksvölum sem bjóða upp á einstakan griðastað utandyra. Eignin skiptist í forstofu með miklu skápaplássi, rúmgóða stofu með möguleika á eldstæði, sjónvarpsstofu, borðstofu, víngeymslu og eldhús með eyju í opnu rými. Rýmið er tilvalið fyrir móttöku gesta. Úr alrýminu er útgengt á suðurþaksvalir með fallegri sjávarsýn og möguleika á heitum potti. Íbúðin er með tveimur rúmgóðum svefnherbergjum, báðum með fataherbergjum. Inn af stærri hjónasvítunni er sérbaðherbergi og þaðan er jafnframt beint útgengi á þaksvalir. Auk þess eru tvö önnur baðherbergi, sérþvottahús og búr innan íbúðar.

Afhending íbúðar 503: Auglýst verð miðast við afhendingu íbúðarinnar tilbúinnar til innréttinga, sem gefur kaupendum kost á að haga hönnun og efnisvali eftir eigin stíl og óskum. Einnig er í boði að fá íbúðina afhenta fullbúna án megingólfefna á 325.000.000 kr. Við þau skil geta kaupendur valið á milli tveggja hönnunarþema, Yls og Steins. Nánari upplýsingar um afhendingarástand og endanleg skil er að finna í skilalýsingu seljanda.

Kaupendur geta haft áhrif á efnisval og skipulag íbúðar komi þeir snemma að kaupum. Allar nánari uppl. veitir Margrét Rós fasteignasali í GSM: 856-5858 netfang margret@fstorg.is 
Sjá nánari upplýsingar um verkefnið á sölusíðu Vesturbakka.

Nánar um Vesturbakka verkefnið: Við Vesturbakka rísa 118 vandaðar íbúðir, þar sem fágaður arkitektúr, tímalaus hönnun og nútímaþægindi fara saman. Íbúðirnar eru fjölbreyttar og einkennast af vel útfærðu skipulagi og vönduðu efnisvali. Vesturbakki stendur við Kársneshöfn, þar sem framtíðarsýn Kópavogsbæjar fyrir svæðið er að taka á sig mynd. Í skipulagi er meðal annars gert ráð fyrir veitingastað og aðstöðu til sjósunds, sem munu stuðla að lifandi og aðlaðandi hafnarsvæði.

Sameiginleg aðstaða til afþreyingar og vellíðunar verður á 1. hæð við Vesturbakka 21b og stendur íbúum hússins til boða. Þar verður vönduð líkamsræktaraðstaða, sauna og útisvæði með heitum og köldum potti. Jafnframt verður þar golfhermir og aðstaða til pílukasts. Í bílakjallara verða 103 sérmerkt bílastæði og á lóð hússins verða 58 bílastæði til viðbótar.

Við hönnun bygginganna er lögð áhersla á þægindi og góða innivist, meðal annars með vönduðu byggingarefnavali. Allar íbúðir verða með gólfhita og sérstöku loftskiptikerfi, sem stuðlar að góðum loftgæðum.

Við fullbúin skil verða íbúðirnar útfærðar samkvæmt hönnunarþemunum Yl eða Steini, með innréttingum frá Parka eða Voke III og heimilistækjum frá Siemens. Helluborð verður með innbyggðri viftu og möguleika á þráðlausri fjarstýringu. Útfærsla eldhústækja verður mismunandi eftir íbúðum, en þar verða meðal annars sambyggðir baksturs- og örbylgjuofnar, frystar og vínkælar. Í íbúðunum verður einnig free@home hússtjórnunarkerfi, sem gerir íbúum kleift að stýra meðal annars hitastigi, lýsingu og gardínum. Tæknimaður kemur í hverja íbúð til að stilla kerfið og leiðbeina íbúum um notkun þess.

Bakkabraut 11 íb503

200 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð205,9 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.3
300.000.000 kr.1.457 þ./m²
InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2242821Fasteignamat2 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑