fasteignasölur.is
Kórsalir 5
Opið hús 18. nóv. kl. 17:30–18:00
1 af 31

Um eignina

Helgafell fasteignasala og Jón G. Sandholt kynna: Kórsali 5 – rúmgóða 5 herbergja íbúð á tveimur hæðum með sérinngangi, tveimur baðherbergjum og sér afnotarétti á lóð.

Um er að ræða rúmgóða og vel skipulagða íbúð á tveimur hæðum með þremur svefnherbergjum, tveimur stofum og tveimur baðherbergjum. Á sameign er hleðslustöð fyrir tvo bíla. Eignin býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, meðal annars möguleika á að útbúa fjórða svefnherbergið á neðri hæð.

Töluverðar endurbætur hafa verið gerðar á eigninni á undanförnum árum, meðal annars hafa gólfefni og allar innihurðir verið endurnýjað, nýjar innréttingar settar í forstofu og þvottahús, gluggar yfirfarnir og endurbættir ásamt því að dren hefur verið lagfært og útveggur einangraður. Þá standa yfir lyftuskipti í húsinu árið 2026. Kostnaður á seljanda.

Nánari lýsing eignar

Efri hæð:

Forstofa
: Sérinngangur í íbúðina. Nýjar flísar á gólfi og ný innrétting frá árinu 2026.
Eldhús: Eldhús með borðkrók. Flísar á milli efri og neðriskápa. Á einni eldhúsmynd hefur tvöfaldur ísskápur sem er í dag í eldhúsi verið fjarlægður, einfaldur ísskápur passar við innréttingu.
Stofa og borðstofa: Rúmgott alrými með góðu plássi fyrir setustofu og borðstofu.
Svefnherbergi: Svefnherbergi á efri hæð.
Baðherbergi: Baðherbergi með baðkari, baðinnréttingu, vaski og upphengdu salerni. Endurbætur voru gerðar á baðherberginu árin 2016 og 2017.
Þvottahús: Þvottahús með nýjum innréttingum og flísum á gólfi frá árinu 2026.

Neðri hæð:

Sjónvarpsstofa / alrými
: Rúmgóð stofa sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika. Veggur stofu á teikningum er léttur(kíttaður ofan á parket), hægt að fjarlægja og nýta sem eitt rými.
Svefnherbergi I: Með parket á gólfum.
Svefnherbergi II: Með parket á gólfum.
Baðherbergi: Baðherbergi með sturtu og baðkari. Endurbætur voru gerðar árið 2016, meðal annars á flísum, innréttingu og sturtuaðstöðu.
Geymsla: Rúmgóð geymsla er innan íbúðar.

Útgengi er í sameign frá neðri hæð.

Nánar um endurbætur

2026
  • Nýjar flísar á gólf í forstofu og þvottahúsi.
  • Nýjar innréttingar í þvottahúsi og anddyri.
  • Gluggar hússins málaðir.
  • Unnið er að endurnýjun lyftu í húsinu.
2025
  • Skipt um gler og opnanleg gluggafög þar sem þörf var á.
2024
  • Gluggar og gler yfirfarin og gluggakarmar þéttir.
2021
  • Dren lagfært og einangrun sett á útvegg við íbúðina.
2019
  • Harðparket frá Harðviðarvali lagt á gólf.
  • Allar innihurðir endurnýjaðar með hurðum frá Birgisson.
2016–2017
  • Endurbætur á báðum baðherbergjum, meðal annars endurnýjun innréttinga, hreinlætistækja, blöndunartækja og sturtuaðstöðu.
  • Upphengt salerni sett á baðherbergi efri hæðar.
2013–2015
  • Grindverk sett utan um sérafnotareit við inngang árin 2013–2014.
  • Screen-gardínur frá Sólar gluggatjöldum settar upp árin 2014–2015.
Lóð og sameign
Íbúðinni fylgir sér afnotaréttur á lóð þar sem komið hefur verið fyrir grindverki við inngang. Í sameign hússins er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Unnið er að endurnýjun lyftu í húsinu árið 2026.

Fyrir nánari upplýsingar eða bókun á skoðun hafið samband við Jón G. Sandholt, löggiltan fasteignasala, í síma 777-2288 eða á netfangið jon@helgafellfasteignasala.is.

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Helgafell Fasteignasala
99.900.000 kr.588 þ./m²
+86,7% á 8 árum
14. febrúar 2019Fyrsta sala
53.500.000 kr.315 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Kórsalir 5

201 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð169,8 m²Herbergi5Svefnherb.3Baðherb.2
99.900.000 kr.588 þ./m²
Byggingarár2001InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2244123Fasteignamat94.600.000 kr.Brunabótamat93.500.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangStórhöfða 33, 110Sími566-0000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 31 myndir

Upp ↑