fasteignasölur.is
Hallgerðargata 19
Nýtt
1 af 17

Um eignina

Miklaborg og Böddi kynna: Glæsileg hárgreiðslustofa til LEIGU við Hallgerðargötu 19

Björt og rúmgóð, 178,8 fm hárgreiðslustofa á jarðhæð. Stofan er vel skipulögð í opnu rými með stórri afgreiðslu og góðu verslunarrými fremst. Mikið gluggarými og vönduð lýsing skapa aðlaðandi umgjörð fyrir starfsfólk og viðskiptavini.

Á stofunni eru 12 rúmgóðar vinnuaðstöður með speglum, þar af níu með klippistólum, ásamt fjórum vönduðum þvottavöskum með nuddi. Gott bil er á milli vinnuaðstaðna og nægt athafnarými.

Húsnæðið er tiltölulega nýparketlagt og búnaður vel með farinn. Góð kaffi- og eldhúsaðstaða, þvottaaðstaða og lageraðstaða eru til staðar, auk aðgangs að sameiginlegu rými.

Nóg er af bílastæðum í bílastæðahúsi undir húsinu, en þaðan er komið upp beint fyrir framan stofuna.

Stofan er nánast tilbúin til opnunar – hér er tækifæri til að fylla hillurnar af vörum, mæta með starfsfólkið og hefja rekstur í glæsilegri aðstöðu.


Nánari upplýsingar veitir Böddi, löggiltur fasteignasali hjá Mikluborg.
Sími: 821 6300
Netfang: boddi@miklaborg.is

Allar nánari upplýsingar gefur

Hallgerðargata 19

105 Reykjavík · Austurbær
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð178,8 m²Herbergi3Baðherb.2
Tilboð
Byggingarár2020InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2369805Fasteignamat190.250.000 kr.Brunabótamat372.000.000 kr.
Skráð hjá
Böðvar Þ. EggertssonLöggiltur fasteignasali821-6300 · boddi@miklaborg.is
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 17 myndir

Upp ↑