fasteignasölur.is
Skipholt 70
1 af 17

Um eignina

Lind fasteignasala og Ísak V. Jóhannsson í síma 822-5588 kynna einstaklega fallega og vel hannaða tveggja herbergja íbúð á efstu hæð í glæsilegu lyftuhúsi við Skipholt 70 í Reykjavík. Um er að ræða afar vel skipulagða 52,6 fm íbúð þar sem hönnun, efnisval og útfærsla fara einstaklega vel saman. Íbúðin státar af góðri lofthæð, sérsmíðuðum háum innihurðum, stórum gólfsíðum gluggum og  svölum með fallegu útsýni.
Í íbúðinni eru sérsmíðaðar innréttingar eftir teikningum Studio Granda  og bera vandaðri hönnun og efnisvali glöggt vitni.
Allar nánari upplýsingar og ráðgjöf um eignina veita Ísak V. Jóhannsson og Viðar Marinósson  sími: 822-5588 isak@fastlind.is 

Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Forstofa með fatahengi.
Eldhús: Falleg og sérsmíðuð eldhúsinnrétting með ljósum undir yfirskápum. Borðplata úr stáli og tengi fyrir uppþvottavél.
Stofa: Björt stofa með stórum gólfsíðum glugga sem hleypa einstakri birtu inn í rýmið. Útgengt er úr stofu á svalir þar sem  hægt er að njóta útsýnisins.
Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með fataherbergi inn af.
Fataherbergi/geymsla: Sérstakt fataherbergi/geymsla inn af svefnherbergi.
Baðherbergi: Fallegt flísalagt baðherbergi með mósaíkflísum frá Cinca. Góðir skápar, upphengt salerni og rúmgóð sturta  með glerskilrúmi. Innfelld blöndunartæki frá Grohe. Handklæðaofn og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sameign: Stílhrein og fallega hönnuð sameign. Á jarðhæð er rúmgóð sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Á þriðju hæð eru stórar sameiginlegar þaksvalir sem nýtast vel sem útisvæði.
Í nánasta umhverfi má finna flesta þá þjónustu sem fólk þarf á að halda.
Gönguleiðir, hjólreiðastígar og falleg útivistarsvæði eru í næsta nágrenni. 
Allar nánari upplýsingar og ráðgjöf um eignina veita Ísak V. Jóhannsson og Viðar Marinósson  sími: 822-5588 isak@fastlind.is 





 

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
58.900.000 kr.1120 þ./m²
+5,2% á 2 árum
5. september 2024Þinglýstur kaupsamningur
56.000.000 kr.1065 þ./m²
+61,4% á 7 árum
15. nóvember 2017Fyrsta sala
34.700.000 kr.660 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Skipholt 70

105 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð52,6 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
58.900.000 kr.1.120 þ./m²
Byggingarár1965InngangurSérinngangurLyftaJáFasteignanúmerF2359847Fasteignamat53.350.000 kr.Brunabótamat37.100.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 17 myndir

Upp ↑