fasteignasölur.is
Hólaberg 42
Opið hús 18. nóv. kl. 17:00–17:30
1 af 41

Um eignina

Trausti fasteignasala kynnir í einkasölu HÓLABERG 42, 111 Reykjavík. Einstaklega glæsilegt og vel við haldið 5 herbergja endaraðhús á tveimur hæðum með sérmerktu bílastæði. Um er að ræða bjarta og rúmgóða fjölskyldueign með fjórum svefnherbergjum, rúmgóðri stofu og stórum afgirtum sérafnotagarði ásamt timburverönd. Eignin er vel skipulögð með góðum rýmum og fjölbreyttum nýtingarmöguleikum.

Eignin er skráð alls 128,2 fm. samkvæmt HMS. - Smelltu hér til að sækja söluyfirlit

Nánari lýsing neðri hæðar (64,5 fm):
Forstofa
: Björt og snyrtileg forstofa með flísum á gólfi og fataskáp. Úr forstofu er gengið inn í hol sem tengir saman önnur rými neðri hæðar. 
Þvottahús: Inn af forstofu er rúmgott og vel skipulagt þvottahús með innréttingu, vaski, góðu skápaplássi og tengjum fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.
Gestasnyrting: Snyrtileg gestasnyrting með upphengdu salerni og innréttingu. Dúkur á gólfi og veggir flísalagðir að hluta.
Hol: Opið hol sem tengir saman forstofu, stofu og önnur rými neðri hæðar. Teppalagður stigi með viðarhandriði liggur upp á efri hæð.
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð L-laga stofa með stórum gluggum. Rýmið býður upp á góða aðstöðu fyrir bæði setustofu og borðstofu. Dúkur á gólfi.
Eldhús: Nýlega endurnýjað eldhús með hvítri innréttingu, góðu skápa- og vinnuplássi og tengi fyrir uppþvottavél. Borðplata og veggklæðning milli efri og neðri skápa eru frá Fanntófelli. Innbyggður bakaraofn, helluborð og háfur. Gluggi veitir góða náttúrulega birtu. Dúkur á gólfi.
Garður: Stór og afgirtur sérafnotagarður með grasflöt og rúmgóðri timburverönd. Á veröndinni er góð aðstaða fyrir útihúsgögn og setusvæði. Garðurinn býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika fyrir fjölskylduna.

Nánari lýsing efri hæðar (63,7 fm):
Hol
: Parketlagt hol. Þaðan er gengið inn í svefnherbergi og baðherbergi efri hæðar.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart hjónaherbergi með stórum fataskáp sem nær upp í loft. Parket á gólfi.
Herbergi 2,3 og 4: Rúmgóð og björt herbergi með parketi á gólfum. Hillueiningar, skápar og fataskápur geta fylgt með við sölu.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með walk-in sturtu, innréttingu, upphengdu salerni og glugga.
Geymsla: Geymsluherbergi með góðu hillurými. Dúkur á gólfi.
Háaloft: Aðgengi að háalofti er um fellistiga. Rýmið er óupphitað og nýtt sem geymsla.

Húsið stendur í fjölskylduvænu og grónu hverfi þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, íþróttaaðstöðu, útivistarsvæði og aðra helstu þjónustu.

Allar nánari upplýsingar veita:
Anton Y. Sakornra
m, aðstoðarmaður fasteignasala, s. 779-5463 / anton@trausti.is
Kristján Baldursson, löggiltur fasteignasali, s. 867-3040 / kristjan@trausti.is
Bóka verðmat - www.trausti.is - Trausti á Facebook
 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Trausti fasteignasala
89.900.000 kr.701 þ./m²
+18,9% á 3 árum
16. apríl 2024Fyrsta sala
75.600.000 kr.590 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hólaberg 42

111 Reykjavík · Berg/Hólar/Fell
TegundRað-/parhúsStærð128,2 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.2
89.900.000 kr.701 þ./m²
Byggingarár1981InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2051213Fasteignamat84.350.000 kr.Brunabótamat71.100.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 41 myndir

Upp ↑