fasteignasölur.is
Borgartún 24
Opið hús 19. nóv. kl. 12:15–13:00
1 af 7

Um eignina

Valhöll kynnir glæsilega útsýnisíbúð á 3 hæð í vel staðsettri nýbyggingu við Borgartún 24, Reykjavík.
Íbúðin afhendist fullbúin með vönduðum innréttingum, innbyggðum eldhústækjum og gólfefnum. 

SELJANDI SKOÐAR ÝMIS SKIPTI


Sjá link af öllu húsinu, umhverfi og staðsetningu íbúða
B24.is

Um er að ræða íbúð 315 í Borgartúni 24a, 3ja herbergja íbúð.
Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 79 fm, þar af er íbúðarrými 71,4 fm og sérgeymsla er 7,6 fm.
Íbúðin skiptist í eldhús og stofu í alrými, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Sérgeymsla fylgir íbúðinni. Svalir snúa í norður. 

* Frábær staðsetning í grónu hverfi. Steinsnar frá miðbænum og Laugardalnum. Frábært útsýni er úr mörgum íbúðum.*

 
Borgartún 24 er glæsilegt 7 hæða fjölbýlishús með 64 íbúðum á 2.-7 hæð og verslunar- og þjónusturýmum á 1. hæð í einu helsta viðskiptahverfi borgarinnar. Í Borgartúni er blönduð byggð íbúða, skrifstofu-, verslunar- og þjónustuhúsnæðis. Frábær staðsetning í næsta nágrenni við stóra vinnustaði og alla helstu þjónustu, í göngufæri frá miðbænum og Laugardalnum. Byggingin er byggð utan um sameiginlegan inngarð. Á 4. hæð er einnig sameiginlegur þakgarður og á 7. hæð eru sameiginlegar þaksvalir.
 
Frágangur íbúða að innan: Vandaðar þýskar innréttingar frá Nobilia í eldhúsi, baði og herbergjum (söluaðili er GKS). Íbúðirnar afhendast fullbúnar með tækjum og gólfefnum. Eldhúsraftæki koma frá Siemens, ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð. Harðparket á gólfum herbergja og í alrými. Gólf á baðherbergjum og þvottahúsum eru flísalögð. Hreinlætistæki frá Grohe.  
Frágangur utanhúss: Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með viðhaldsléttri álklæðningu eða sambærilegu efni. Timbur/ál gluggar. Lóð og bílastæði: Sameiginlegur inngarður er á 2. hæð og sameiginlegar þaksvalir eru á 4. hæð. Í bílakjallara eru 39 bílastæði, þar af 4 fyrir hreyfihamlaða, og 30 bílastæði eru á lóð. Bílastæði fyrir hreyfihamlaða er einnig á plani við aðalinngang.
Hiti og rafmagn: Hiti er sameiginlegur og reiknast samkvæmt hlutfallstölu en rafmagn er á sérmæli fyrir hverja íbúð. 

Allar nánari upplýsingar veita þær  Elín Viðarsdótttir í s. 695-8905 eða elin@valholl.is og Þóra Birgisdóttir í s. 777-2882 eða thora@valholl.is

Borgartún 24

105 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð79 m²Herbergi3Svefnherb.2
82.900.000 kr.1.049 þ./m²
Byggingarár2024InngangurSérinngangurLyftaJáFasteignanúmerF2518361Fasteignamat74.600.000 kr.Brunabótamat51.050.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSíðumúli 27, 108 ReykjavíkSími588-4477

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 7 myndir

Upp ↑