fasteignasölur.is
Akursíða 10 203
1 af 31

Um eignina

Kasa fasteignir 461-2010.

Akursíða 10 íbúð 203 - Björt og falleg 88,9 fm 3 herbergja íbúð á efri hæð ásamt þakverönd á frábærum stað í Síðuhverfi.
Eignin er vel staðsett rétt við leik- og grunnskóla, Bjarg og félagsaðstöðu eldriborgara.

Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, 2 svefnherbergi, þvottahús, geymslu og sérgeymslu í sameign.


Forstofa er flísalögð með opnu fatahengi og handklæðaofni. 
Eldhús og stofa eru í opnu og björtu rými með parketi á gólfi. Í eldhúsi er hvít innrétting með pláss fyrir ísskáp og uppþvottavél, dökk borðplata og ljósar flísar á milli skápa. Ofn og helluborð eru í eldhúseyju sem skilur að eldhús og borðstofu. 
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja. Þar er hvít innrétting, upphengt salerni, opnanlegur gluggi og innangeng sturta með innmúruðum tækjum.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parket á gólfum.
Þvottahús er með flísum á gólfi. Þar er borðplata með skolvaski og pláss fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er inn af þvottahúsi, þar eru flísar á gólfi.

Ekki er starfandi húsfélag í húsinu.

Árið 2022:
- Settur gólfhiti og nýjar flísar á forstofu. 
- Nýjar flísar í þvottahús og geymslu.
- Baðherbergi var endurnýjað, gólfhiti, nýjar flísar, sturta og ný innrétting.
- Eldhúsinnrétting var lökkuð, settar nýjar bekkjarplötur, vaskur og helluborð.
- Þakpappi settur á skyggni fyrir ofan hurð.

- Nýtt parket 2020
- Í sumar var skipt um gler í glugga í eldhúsi
- Snjóbræðsla í stétt
- Sér geymsla í sameign
- Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla
- Frábær staðsetning

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Teikningar sem birtar eru í auglýsingu og söluyfirliti eru eingöngu til viðmiðunar og sýna núverandi skipulag eignarinnar. Ekki er ábyrgst að þær séu samþykktar teikningar eða í samræmi við opinber byggingargögn.

Akursíða 10 203

603 Akureyri (utan Glerár)
TegundFjölbýlishúsStærð88,9 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
59.900.000 kr.674 þ./m²
Byggingarár2007InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2295501Fasteignamat62.000.000 kr.Brunabótamat57.250.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangRáðhústorgi 1, 600 AkureyriSími461-2010

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 31 myndir

Upp ↑