Um eignina
Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@aldirfasteignir.is
Nánari lýsing.
Anddyri: Flísar á gólfi, fallegur hvítur fataskápur.
Eldhús: Falleg nýleg innrétting frá IKEA, gott skápapláss, góð vinnuaðstaða, uppþvottavél og gluggi með opnanlegu fagi. Á gólfi eru korkflísar.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og á veggjum, eldri innrétting og baðkar með sturtuaðstöðu.
Svefnherbergi: Dúkur á gólfi, fataskápar innan herbergis og gluggi með opnanlegu fagi.
Gangur: Parket á gólfi
Stofa: Parket á gólfi, rúmgóð og björt með útgengi á sér svalir eignar.
Í kjallara húseignar er sérgeymsla íbúðar, sameiginlegt þvottahús og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Á bak við hús er stór sameignlegur garður og við húseignina eru sameiginleg bílastæði þar sem búið er að setja um hleðslustöðvar.
Falleg íbúð í grónu hverfi þar sem sutt er í Laugardalinn og alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjofur@aldirfasteignir.is
Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Aldir fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.
Verðsaga
2 þinglýstir kaupsamningarHeimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Kleppsvegur 30
Staðsetning
Allar 27 myndir
Upp ↑

























