fasteignasölur.is
Bláhamrar 3
Opið hús 17. nóv. kl. 16:30–17:00
1 af 31

Um eignina

Háborg fasteignasala og Þórunn Páls lgf.  kynna Bláhamra 3.  Glæsilega 4ra herbergja endaíbúð með sérinngangi, stórum afgirtum sérafnotafleti til suðurs og austur og sérmerktu bílastæði á lóð. Eignin er  114,8 fm,  þar þar af er 6 fm  geymsla sem er ekki í birtu flatarmáli og sjálf íbúðin er  108,7 fm.   Þrjú svefnherbergi, þar af tvö stór með með fataskápum. Rúmgóð og björt stofa með sólstofuútskoti og útgengi á glæsilegan afgirtan pall.  Hálfopið fallegt eldhús með góðu vinnuplássi.  Baðherbergi með opnanlegum glugga, sturtu og þvottaaðstöðu.  Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 og thorunn@haborg.is

Íbúðin er teiknuð af Gísla Halldórssyni arkitekt og einkennist af frábæru skipulagi og hönnun.   Gluggar eru á þrjá vegu  og  fjórða hlið íbúðarinnar liggur að sameign með hjólageymslum og geymslum þannig að engin hlið eignarinnar liggur að annarri íbúð.  Gengið er út á pallinn úr stofu og afar gott flæði er á milli inni og útisvæðis.
Gengið er inn um sérinngang í rúmgóða forstofu.  Hún opnast inn í bjart og skemmtilegt alrými sem telur glæsilegt eldhús og bjarta stofu.  Fremst  eru fataskápar og á vinstri hönd er gengið inn í mjög rúmgott herbergi með skápum.  Það er stærra en samþykktar teikningar sýna sem nemur 2,8 fm að innanmáli, en búr sem sýnt er á teikningum er ekki til staðar.  Beint af augum er eldhúsið sem er með góða glugga að glæsilegum afgirtum pallinum.
Á hægri hönd frá forstofu er 7,7 fm herbergi sem er ekki með fataskápum og við hliðina á því, hjónaherbergið sem er rúmgott og með góðu skápaplássi.  Næst er baðherbergið sem er  með sturtu, þvottaaðstöðu og opnanlegum glugga.
Íbúðin var mikið endurnýjuð árið 2007.  Þá var eldhúsið endurnýjað á vandaðan hátt með  steini í borðum og vönduðum eldhústækjum  frá Gorenje.  Árið 2007 voru jafnframt innihurðir endurnýjaðar ásamt baðherberginu.  Á gólfum íbúðarinnar er viðarparket  nema að æa  baði og forstofu eru flísar.

Einstaklega skemmtileg og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð með sérinngangi  og góðum palli á þessum vinsæla stað í Hamrahverfi Grafarvogs sem er gróið fjölskylduvænt hverfi í nálægð við náttúru og útivistarsvæði.  Stutt er í Hamraskóla  frá Bláhömrum og örstutt í leikskóla.  Fjölbreytt þjónusta er  bæði á Ártúnshöfða og uppi í Spöng.

Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsd. lgf s 773-6000 og thorunn@haborg.is







Nánari upplýsingar veitir Þórunn Pálsdóttir Lögg. fasteignasali, í síma 7736000, tölvupóstur thorunn@haborg.is.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Háborg fasteignasala
89.900.000 kr.784 þ./m²
+195,7% á 13 árum
12. febrúar 2014Þinglýstur kaupsamningur
30.400.000 kr.280 þ./m²
+4,8% á 1 ári
28. desember 2012Fyrsta sala
29.000.000 kr.267 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Bláhamrar 3

112 Reykjavík · Grafarvogur
TegundFjölbýlishúsStærð114,7 m²Herbergi5Svefnherb.3Baðherb.1
89.900.000 kr.784 þ./m²
Byggingarár1989InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2039015Fasteignamat74.550.000 kr.Brunabótamat58.900.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGrensásvegur 1, 6. hæð, 108 ReykjavíkSími497-0031

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 31 myndir

Upp ↑