fasteignasölur.is
Spánn - Villamartin - GOTT VERÐ
1 af 42

Um eignina

*DRAUMAEIGN GOLFARANS*
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, veitir allar upplýsingar, adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495.
Glænýjar og vandaðar 3ja  herb.  íbúðir á frábærum stað í lyftuhúsi á Villamartin golfparadísarsvæðinu, ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. Stutt í La Fuente verslunar og veitingahúsakjarnann og Mercadona matvöruverslunina og í La Zenia Boulevard, nýju og flottu verslunarmiðstöðina. Örstutt á frábæra golfvelli, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Las Colinas og ótal fleiri. El Limonar, einn besti alþjóðlega einkaskólinn á svæðinu er örstutt frá.


Flottur sundlaugargarður.
Einstakt tækifæri til að eignast góða íbúð á fínu verði.
Íbúðirnar eru í byggingu, en verða afhentar fyrri hluta 2019. Hægt er að fá íbúðirnar afhentar fullbúnar fallegum húsgögnum og húsbúnaði þannig að hægt er að mæta bara á staðinn og byrja að njóta frá fyrsta degi. Gólfhiti á baðherbergjum.

Stórar svalir með flestum íbúðunum, og auk þess sér þaksvalir með íbúðum á efri hæðum. Í hönnun og frágangi er áhersla lögð á góða sameiginlega aðstöðu, í lokuðum sundlaugargarði.

Sér stæði í bílakjallara fylgir öllum íbúðum.

Ca. 10 mínútna akstur niður á fallegar strendur La Zenia og Cabo Roig.

Verð:
3ja herb íbúð, með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum frá 128.00 evrum ( Ikr. 15.400.000 + kostn. miðað við gengi 1Evra=120Ikr.)
Kaupverðið er greitt í áföngum, og ekki þarf að ganga frá lokagreiðslu fyrr en íbúðin er afhent tilbúin.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður og borgum fyrir tvo allt að 60.000 kr/mann eða samtals 120.000,-
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka á góðum kjörum.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Spánn - Villamartin - GOTT VERÐ

1000 Útlönd - Annað
15.400.000 kr.
Fjölbýlishús2 svefn · 2 bað
TegundFjölbýlishúsStærð0 m²Herbergi3BílskúrLyftaFasteignanúmerF100000086
Skráð hjá
HeimilisfangHólmgarður 34, 108 Reykjavík, 108Sími893-2495

Allar 42 myndir

Upp ↑