fasteignasölur.is
Cabo Roig
1 af 16

Um eignina

Zenterhouse kynnir 4ra herbergja raðhús á frábærum stað í Cabo Roig. Húsið er staðsett í lokuðu hverfi þar sem ströndin er einungis í 10 mínútna göngufæri. 

Svæði: Costa Blanca Suður, Cabo Roig

4ra herbergja lítið og snyrtilegt raðhús á þremur hæðum. Á fyrstu hæð er stofa, borðstofa, eldhús og baðherbergi, gengið er af þeirri hæð út á litla verönd þar sem er hlaðið útigrill. Á annarri hæð eru tvö svefnherbergi og baðhergi. Á þriðju hæð er eitt svefnherbergi og gengið er þaðan út á stóra þakverönd. 

Eigninni fylgir sameiginleg sundlög og lítið leiksvæði fyrir börn. Húsgögn fylgja kaupum.

Mjög góðir útleigu möguleikar. 

Reference: ZH10010

Nánari upplýsingar fást í gegnum info@zenterhouse.is eða í síma 557 1400

Athugið að kaupverðið er reiknað miðað við að 1 evra sé 140 kr.


Það bætist við kaupverð 10% spænskur söluskattur af kaupverði eignarinnar og svo er gott að miða við 2-3% í stimpilgjöld og umsýslukostnað. 

Möguleiki er á allt að 70% fjármögnun frá Spænskum bönkum. 

Zenterhouse býður upp á skipulagðar skoðunarferðir til Spánar á sanngjörnu verði, fyrir allt að tvo aðila, þar sem kostnaður er síðan að fullu 
endurgreiddur við kaup á fasteign. Innifalið í skoðunarferðum er flug, gisting og ferðir til og frá flugvelli. Ekki hika við að 
hafa samband við okkur ef áhugi er fyrir hendi til þess að fara til Spánar og skoða eitthvað af þeim fjölmörgu eignum sem við höfum upp á að 
bjóða. 

Cabo Roig

1000 Útlönd - Annað
19.180.000 kr.240 þ./m²
Rað-/parhús3 svefn · 2 bað
TegundRað-/parhúsStærð80 m²Herbergi4FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangNicolas de Bussi 1732, 03189 Playa FlamencaSími557-1400

Allar 16 myndir

Upp ↑