fasteignasölur.is
La Zenia
1 af 27

Um eignina

Zenterhouse kynnir frábært 4 herbergja raðhús á þremur hæðum á frábærum stað í La Zenia, í göngufæri við alla helstu þjónustu.

Svæði: Costa Blanca Suður, La Zenia

Eignin staðstett á besta stað í La Zenia og er einungis 400 metra frá fallegu La Zenia ströndinni.  
Húsið er í afgirtu hverfi þar sem 14 hús eru og aðgangur er að sameiginlegri sundlaug.
Á fyrstu hæð er stofa sem í er arinn og eldhús. Á annari hæð eru 3 svefnherbergi og á þriðju hæð er rými sem hægt væri að nýta sem setustofu og af þeirri hæð er gengið út á svalir bæði að framan og aftan. Stórar sólarsvalir með frábæru útsýni.
Loftræsting er í húsinu og húsið verður selt með húsgögnum

EIGINLEIKAR EIGNAR; SUNDLAUG, HÚSGÖGN FYLGJA, ÞJÓNUSTA Í GÖNGUFÆRI, SJÁVARÚTSÝNI, ÞAKSVALIR, LOFTKÆLING

Reference: ZH10017
 
Nánari upplýsingar fást í gegnum info@zenterhouse.is eða í síma 557 1400

Athugið að kaupverðið er reiknað miðað við að 1 evra sé 140 kr.


Það bætist við kaupverð 10% spænskur söluskattur af kaupverði eignarinnar og svo er gott að miða við 2-3% í stimpilgjöld og umsýslukostnað. 

Möguleiki er á allt að 70% fjármögnun frá Spænskum bönkum. 

Zenterhouse býður upp á skipulagðar skoðunarferðir til Spánar á sanngjörnu verði, fyrir allt að tvo aðila, þar sem kostnaður er síðan að fullu 
endurgreiddur við kaup á fasteign. Innifalið í skoðunarferðum er flug, gisting og ferðir til og frá flugvelli. Ekki hika við að 
hafa samband við okkur ef áhugi er fyrir hendi til þess að fara til Spánar og skoða eitthvað af þeim fjölmörgu eignum sem við höfum upp á að 
bjóða. 

La Zenia

1000 Útlönd - Annað
25.900.000 kr.301 þ./m²
Rað-/parhús3 svefn · 2 bað
TegundRað-/parhúsStærð86 m²Herbergi4FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangNicolas de Bussi 1732, 03189 Playa FlamencaSími557-1400

Allar 27 myndir

Upp ↑