fasteignasölur.is
La Zenia
1 af 25

Um eignina

Zenterhouse kynnir fallegt og mjög vel við haldið 4 herbergja raðhús á tveimur hæðum á besta stað í La Zenia, í göngufæri við alla helstu þjónustu.

Svæði: Costa Blanca Suður, La Zenia

Eignin staðstett á besta stað í La Zenia og er einungis 350 metra frá fallegu La Zenia ströndinni.  
Húsið er í mjög rólegu og friðsælu hverfi.
Á fyrstu hæð er stofa, eldhús og gestasnyrting.  Á annarri hæð eru 3 svefnherbergi og stórt og snyrtilegt baðherbergi með bæði baðkari og sturtu. Stórar sólarsvalir, flísalagðar. Verönd er bæði að framan og að aftan í húsinu, báðar flísalagðar. Lóðin krefst mjög lítils viðhalds.
Nýir gluggar með tvöföldu gleri eru í húsinu. Sér aðskilin geymsla fylgir.
Loftræsting er í húsinu og húsið verður selt með húsgögnum. 

EIGINLEIKAR EIGNAR; HÚSGÖGN FYLGJA, ÞJÓNUSTA Í GÖNGUFÆRI, ÞAKSVALIR, LOFTKÆLING

Reference: ZH10018
 
Nánari upplýsingar fást í gegnum info@zenterhouse.is eða í síma 557 1400

Athugið að kaupverðið er reiknað miðað við að 1 evra sé 140 kr.


Það bætist við kaupverð 10% spænskur söluskattur af kaupverði eignarinnar og svo er gott að miða við 2-3% í stimpilgjöld og umsýslukostnað. 

Möguleiki er á allt að 70% fjármögnun frá Spænskum bönkum. 

Zenterhouse býður upp á skipulagðar skoðunarferðir til Spánar á sanngjörnu verði, fyrir allt að tvo aðila, þar sem kostnaður er síðan að fullu 
endurgreiddur við kaup á fasteign. Innifalið í skoðunarferðum er flug, gisting og ferðir til og frá flugvelli. Ekki hika við að 
hafa samband við okkur ef áhugi er fyrir hendi til þess að fara til Spánar og skoða eitthvað af þeim fjölmörgu eignum sem við höfum upp á að 
bjóða. 

 

La Zenia

1000 Útlönd - Annað
25.900.000 kr.229 þ./m²
Rað-/parhús3 svefn · 2 bað
TegundRað-/parhúsStærð113 m²Herbergi4FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangNicolas de Bussi 1732, 03189 Playa FlamencaSími557-1400

Allar 25 myndir

Upp ↑