fasteignasölur.is
La Zenia
1 af 16

Um eignina

Zenterhouse kynnir vel staðsetta 4 herbergja íbúð á frábærum stað í La Zenia hverfinu, í göngufæri við alla helstu þjónustu.

Svæði: Costa Blanca Suður, La Zenia

Eignin er staðstett á besta stað í La Zenia og er í göngufæri við veitingastaði, helstu þjónustu, La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina og strönd.
Húsið er í afgirtu hverfi og aðgangur er að sameiginlegri sundlaug.
Á fyrstu hæð er stofa sem í er opinn arinn, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi  Á annari hæð er mjög stórt hjónaherbergi með baðherbergi.
Tvær svalir eru í íbúðinni, önnur snýr í vestur og hin í austur. Húsið verður selt með húsgögnum.

EIGINLEIKAR EIGNAR: SUNDLAUG, HÚSGÖGN FYLGJA, ÞJÓNUSTA Í GÖNGUFÆRI

Reference: ZH10021
 
Nánari upplýsingar fást í gegnum info@zenterhouse.is eða í síma 557 1400

Athugið að kaupverðið er reiknað miðað við að 1 evra sé 140 kr.


Það bætist við kaupverð 10% spænskur söluskattur af kaupverði eignarinnar og svo er gott að miða við 2-3% í stimpilgjöld og umsýslukostnað. 

Möguleiki er á allt að 70% fjármögnun frá Spænskum bönkum. 

Zenterhouse býður upp á skipulagðar skoðunarferðir til Spánar á sanngjörnu verði, fyrir allt að tvo aðila, þar sem kostnaður er síðan að fullu 
endurgreiddur við kaup á fasteign. Innifalið í skoðunarferðum er flug, gisting og ferðir til og frá flugvelli. Ekki hika við að 
hafa samband við okkur ef áhugi er fyrir hendi til þess að fara til Spánar og skoða eitthvað af þeim fjölmörgu eignum sem við höfum upp á að 
bjóða. 


 

La Zenia

1000 Útlönd - Annað
16.800.000 kr.224 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 2 bað
TegundFjölbýlishúsStærð75 m²Herbergi4FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangNicolas de Bussi 1732, 03189 Playa FlamencaSími557-1400

Allar 16 myndir

Upp ↑