1 af 30
Um eignina
Zenterhouse kynnir glæsilegt nýlegt 7 herbergja einbýlishús í La Zenia hverfinu.
Svæði: Costablanca Suður, La Zenia
Húsið er 400fm og stendur á rúmlega 600fm lóð. Á lóðinni er einkasundlaug og stór og mikil flísalögð verönd.
Á fyrstu hæð hússins er stofa sem hægt er að opna út á verönd, borðstofa, stórt og mikið eldhús sem einnig er hægt að opna út á verönd, stórt svefnherbergi með baðherbergi, þvottahús og baðherbergi. Á efri hæð hússins eru þrjú stór svefnherbergi sem öll eru með sér baðherbergjum og úr öllum þremur herbergjum er hægt að ganga út á stórar svalir. Innbyggðir skápar eru í öllum svefnherbergjum hússins.
Ofan á öllu þaki hússins eru þaksvalir. Í húsinu er lyfta sem hægt er að nota til að komast milli hæða.
Í kjallara undir húsinu er stór bílskúr og geymsla.
Stutt í alla þjónustu og á strönd. Frábær staðsetning í rólegu hverfi.
EIGINLEIKAR EIGNAR: LYFTA Í HÚSINU, BÍLSKÚR, ÞAKSVALIR, EINKA SUNDLAUG, SJÁVARÚTSÝNI, LOFTKÆLING, SÉR GARÐUR
Reference: ZH10023
Nánari upplýsingar fást í gegnum info@zenterhouse.is eða í síma 557 1400
Athugið að kaupverðið er reiknað miðað við að 1 evra sé 140 kr.
Það bætist við kaupverð 10% spænskur söluskattur af kaupverði eignarinnar og svo er gott að miða við 2-3% í stimpilgjöld og umsýslukostnað.
Möguleiki er á allt að 70% fjármögnun frá Spænskum bönkum.
Zenterhouse býður upp á skipulagðar skoðunarferðir til Spánar á sanngjörnu verði, fyrir allt að tvo aðila, þar sem kostnaður er síðan að fullu
endurgreiddur við kaup á fasteign. Innifalið í skoðunarferðum er flug, gisting og ferðir til og frá flugvelli. Ekki hika við að
hafa samband við okkur ef áhugi er fyrir hendi til þess að fara til Spánar og skoða eitthvað af þeim fjölmörgu eignum sem við höfum upp á að
bjóða.

La Zenia
1000 Útlönd - Annað
175.000.000 kr.438 þ./m²
Einbýlishús5 svefn · 6 bað
TegundEinbýlishúsStærð400 m²Herbergi7FasteignanúmerF0
Allar 30 myndir
Upp ↑