fasteignasölur.is
La Zenia
1 af 16

Um eignina

Zenterhouse kynnir einstaklega fallegt og glænýtt 4.herbergja einbýlishús í La Zenia hverfinu.

Svæði: Costablanca Suður, La Zenia

Húsið er 149fm og stendur á tæplega 600fm lóð. Á lóðinni er einkasundlaug og stór og mikil flísalögð verönd.
Á fyrstu hæð hússins er stofa sem hægt er að opna út á verönd, borðstofa, stórt og mikið eldhús, svefnherbergi og baðherbergi.  Á efri hæð hússins eru tvö svefnherbergi, annað þeirra er mjög stórt og hægt er að ganga úr því út á stórar svalir. Öll svefnherbergi hússins eru með baðherbergjum. Innbyggðir skápar eru í öllum svefnherbergjum hússins.
Á þaki hússins eru þaksvalir, 71fm. 
Í kjallara undir húsinu er stór bílskúr og geymsla.

Stutt í alla þjónustu og á strönd. Frábær staðsetning í rólegu hverfi.

EIGINLEIKAR EIGNAR: BÍLSKÚR, ÞAKSVALIR, EINKA SUNDLAUG, SJÁVARÚTSÝNI, LOFTKÆLING, SÉR GARÐUR, NÝBYGGING

Reference: ZH10024

Nánari upplýsingar fást í gegnum info@zenterhouse.is eða í síma 557 1400

Athugið að kaupverðið er reiknað miðað við að 1 evra sé 140 kr.


Það bætist við kaupverð 10% spænskur söluskattur af kaupverði eignarinnar og svo er gott að miða við 2-3% í stimpilgjöld og umsýslukostnað. 

Möguleiki er á allt að 70% fjármögnun frá Spænskum bönkum. 

Zenterhouse býður upp á skipulagðar skoðunarferðir til Spánar á sanngjörnu verði, fyrir allt að tvo aðila, þar sem kostnaður er síðan að fullu 
endurgreiddur við kaup á fasteign. Innifalið í skoðunarferðum er flug, gisting og ferðir til og frá flugvelli. Ekki hika við að 
hafa samband við okkur ef áhugi er fyrir hendi til þess að fara til Spánar og skoða eitthvað af þeim fjölmörgu eignum sem við höfum upp á að 
bjóða. 

La Zenia

1000 Útlönd - Annað
106.400.000 kr.388 þ./m²
Einbýlishús3 svefn · 3 bað
TegundEinbýlishúsStærð274 m²Herbergi4FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangNicolas de Bussi 1732, 03189 Playa FlamencaSími557-1400

Allar 16 myndir

Upp ↑