fasteignasölur.is
Pilar de la Horadada
1 af 31

Um eignina

Zenterhouse kynnir nýja glæsilega 4 herbergja íbúð á jarðhæð

Svæði: Costa Blanca Suður, Pilar de la Horadada

Glæsileg ný 4 herbergja íbúð með tveimur baðherbergjum í nýjum búðakjarna í Pilar de la Horadada. Íbúðin er 89m² og fylgir 36m² verönd og 6m²  svalir.
Björt og vel skilpulög eign með fallegum innréttingum með hita í gólfum á baðherbergjum. Innifalið í eigninni er ísskápur með frysti, uppþvottavél, örbylgjuofn, eldhúsháfur og spanhelluborð. 
Í kjarnanum er stór og glæsileg sameiginleg sundlaug.

Stutt í alla þjónustu og tekur um 10 mín að keyra að hinum fallegum ströndum Torre de la Horadada og að golfvellinum Romero Golf.

Í þessum íbúðakjarna er Zenterhouse einnig með í sölu fleiri eignir, í boði eru mismunandi stærðir íbúða; íbúðir á  jarðhæð með garði og verönd eða íbúð á efri hæð með þakverönd og svölum.

Eignin er tilbúin til afhendingar í sept 2019

EIGINLEIKAR EIGNAR: ÞJÓNUSTA Í GÖNGUFÆRI, NÁLÆGT GOLFVELLI,  LOFTKÆLING, NÝBYGGING, SUNDLAUG, 

Reference : ZH10081

Nánari upplýsingar fást í gegnum info@zenterhouse.is eða í síma 557 1400

Athugið að kaupverðið er reiknað miðað við að 1 evra sé 140 kr.

Það bætist við kaupverð 10% spænskur söluskattur af kaupverði eignarinnar og svo er gott að miða við 2-3% í stimpilgjöld og umsýslukostnað. 


Möguleiki er á allt að 70% fjármögnun frá Spænskum bönkum. 

Zenterhouse býður upp á skipulagðar skoðunarferðir til Spánar á sanngjörnu verði, fyrir allt að tvo aðila, þar sem kostnaður er síðan að fullu 
endurgreiddur við kaup á fasteign. Innifalið í skoðunarferðum er flug, gisting og ferðir til og frá flugvelli. Ekki hika við að 
hafa samband við okkur ef áhugi er fyrir hendi til þess að fara til Spánar og skoða eitthvað af þeim fjölmörgu eignum sem við höfum upp á að 
bjóða. 

Pilar de la Horadada

1000 Útlönd - Annað
22.386.000 kr.252 þ./m²
Rað-/parhús3 svefn · 2 bað
TegundRað-/parhúsStærð89 m²Herbergi4FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangNicolas de Bussi 1732, 03189 Playa FlamencaSími557-1400

Allar 31 myndir

Upp ↑