Um eignina
TIL LEIGU : Glæsilegt 530 fm rými í nýju skrifstofuhúsnæði á 4. hæð að Kalkofnsvegi 2, (Hafnatorg) með útsýni að Esju til norðurs.
Nánari lýsing á rými:
Möguleiki á opnu rúmgóðu rými og sérafnot af þremur salernum og einu salerni í sameign.
Rýmið verður skilað fullinnréttað.
Möguleiki er á opnu rými sem og að hólfa rýmið í allt að tvær skrifstofur/fundarherbergi.
Sérafnot eru af tveimur fundarherbergjum sem staðsett eru utan rýmis.
Á jarðhæð rekur húsfélagið glæsilega sameiginlega móttöku með 8 metra lofthæð þar sem móttökuritarar taka á móti gestum.
Í húsinu er aðgangsstýringarkerfi sem tryggir einungis aðgang starfsmanna að húsinu.
Nánar um Kalkofnsveg 2:
Arkitektar hússins eru PKdM arkitektar. Stofan sem var stofnuð af Pálmari Kristmundssyni arkitekt hefur unnið til fjölda verðlauna hér heima og erlendis fyrir framúrskarandi hönnun. Allt efnisval bygginganna að innan sem utan er í hæsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur.
Undir húsunum er einn stærsti bílakjallari landsins sem tengist við Hörpu. Glæsilegar fasteignir í hjarta Reykjavíkur með iðandi mannlíf allt um kring.
Allar nánari upplýsingar veita:
Reykjastræti fasteignafélag ehf. í síma 571-4990; pall@reykjastraeti.is.
Hafnartorg
Staðsetning
Allar 8 myndir
Upp ↑






