Um eignina
TIL LEIGU : 250 fm glæsilegt nýtt skrifstofuhúsnæði á 6. hæð að Kalkofnsvegi 2, (Hafnatorg) m.a. með svölum og útsýni til suðurs.
Nánari lýsing á rými:
Möguleiki á opnu rúmgóðu rými og salernum í sameign.
Rýminu verður skilað fullinnréttuðu þar sem hönnun innraskipulags tekur tillit til þarfa starfsemi leigutaka.
Möguleiki er á opnu rými sem og að hólfa rýmið í þrjár skrifstofur/fundarherbergi.
Sérafnot eru af einu fundarherbergi sem staðsett eru utan rýmis.
Á jarðhæð rekur húsfélagið glæsileg sameiginleg móttöku með 8 metra lofthæð þar sem móttökuritarar taka á móti gestum.
Í húsinu er rekið aðgangsstýringarkerfi sem tryggir einungis aðgang starfsmanna að húsinu.
Nánar um Kalkofnsveg 2:
Arkitektar hússins eru PKdM arkitektar. Stofan sem var stofnuð af Pálmari Kristmundssyni arkitekt hefur unnið til fjölda verðlauna hér heima og erlendis fyrir framúrskarandi hönnun. Allt efnisval bygginganna að innan sem utan er í hæsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur.
Undir húsunum er einn stærsti bílakjallari landsins sem nær allt til Hörpunnar. Lúxus fasteignir í hjarta Reykjavíkur með iðandi mannlíf allt um kring.
Allar nánari upplýsingar veita:
Reykjastræti fasteignafélag ehf. í síma 571-4990; pall@reykjastraeti.is.
Hafnartorg
Staðsetning
Allar 6 myndir
Upp ↑




